fbpx
Sunnudagur 11.janúar 2026
Fókus

Lestrarkeppni grunnskólanna hófst í gær

Fókus
Föstudaginn 21. janúar 2022 14:06

Eliza Reid. Mynd/Mummi Lú

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þriðja Lestrarkeppni grunnskólanna hófst í gær og verður fyrirkomulagið með sama hætti og í fyrri keppnum. Keppnin stendur yfir í viku. Það var Eliza Reid, forsetafrú, sem hóf keppnina í Smáraskóla í gær. Sem fyrr gengur keppnin út á að lesa setningar inn í gagnasafn, í gegnum vefinn samrómur.is. Upptökurnar verða svo notaðar til að þróa máltæknilausnir sem kenna tölvum og tækjum að skilja íslensku.

Nemendur, foreldrar og starfsfólk skóla geta lesið inn fyrir sinn skóla. Samrómur hvetur alla til að taka þátt því miklu skiptir að fá framlög frá breiðum hópi og tryggja þannig að tæknin skilji raddir og framburð allra.

Viðtökur við síðustu Lestrarkeppni Samróms fóru fram úr björtustu vonum. Alls tóku um 6.000 einstaklingar þátt fyrir hönd 136 skóla og lásu rúmlega 776 þúsund setningar. Smáraskóli las allra skóla mest í síðustu keppni eða rúmlega 131 þúsund setningar.Við erum því afar spennt fyrir komandi keppni og vonumst eftir þátttöku sem flestra skóla.

Samrómur er radd gagnasafn á vegum Almannaróms – Miðstöðvar máltækni og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn með söfnum Samróms er að safna raddgögnum sem máltækni lausnir verða byggðar á. Þannig tryggjum við að tölvur og tæki sem við tölum við muni skilja íslenskt talmál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ætlaði að hafna einu þekktasta hlutverki sínu – Kallaði hlutverkið „helvítis heimsku“

Ætlaði að hafna einu þekktasta hlutverki sínu – Kallaði hlutverkið „helvítis heimsku“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta voru vinsælustu kynlífstækin árið 2025 – „Landsmenn ófeimnir við að prófa sig áfram í pegginu“

Þetta voru vinsælustu kynlífstækin árið 2025 – „Landsmenn ófeimnir við að prófa sig áfram í pegginu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sydney Sweeney gyllt og nakin á forsíðu

Sydney Sweeney gyllt og nakin á forsíðu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ástvinir hafa verulegar áhyggjur af eyðslu söngkonunnar – Gæti endað blönk og heimilislaus

Ástvinir hafa verulegar áhyggjur af eyðslu söngkonunnar – Gæti endað blönk og heimilislaus
Fókus
Fyrir 4 dögum

Óttast viðtökurnar þegar hann kemur til Íslands – „Eiga allir eftir að hata mig?“

Óttast viðtökurnar þegar hann kemur til Íslands – „Eiga allir eftir að hata mig?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nær óþekkjanleg eftir að hafa skafið af sér 45 kíló

Nær óþekkjanleg eftir að hafa skafið af sér 45 kíló
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þórir kvartaði að karlmenn séu sagðir hættulegir og graðir – Saga skýtur fast til baka: „Það þarf ekki nema að googla nafnið þitt“

Þórir kvartaði að karlmenn séu sagðir hættulegir og graðir – Saga skýtur fast til baka: „Það þarf ekki nema að googla nafnið þitt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jói dans selur á Seltjarnarnesi

Jói dans selur á Seltjarnarnesi