Einkaþjálfarinn Margrét Edda Gnarr og unnusti hennar Ingimar Elíasson leikstjóri eiga von á sínu öðru barni saman. Þetta tilkynnir Margrét á Instagram síðu sinni og greinir frá því að annar sonur sé væntanlegur í júlí. Parið hefur verið saman frá árinu 2018 en þau trúlofuðu sig í fyrra.
Fyrir eiga Margrét og Ingimar saman drenginn Elías sem fæddist í upphafi árs 2020 en Ingimar á einnig barn úr fyrra sambandi.
View this post on Instagram