Britney er iðin við tjá sig á samfélagsmiðlum og birti færslu á mánudaginn þar sem hún sagði meðal annars: „Ef ég hefði fengið að hafa dansara Christinu Aguileru hefði ég litið út fyrir að vera virkilega lítil.“
Með færslunni birti hún mynd með tilvitnuninni: „Ég komst að því að það er bara ein leið til að líta út fyrir að vera mjó: Vera í kringum feitt fólk.“
View this post on Instagram
„Ég vildi óska þess að ég hefði fengið að velja barnfóstrur barnanna minna, dansarana mína. Ég meina ef ég hefði fengið að hafa dansara Christinu Aguileru hefði ég litið út fyrir að vera virkilega lítil. Ég meina, af hverju ekki að tala um þetta? Haldið þið ekki að ég hefði verið með meira sjálfsöryggi ef ég hefði fengið að velja hver yrði með mér á sviði,“ sagði Britney.
Færslan var harðlega gagnrýnd af fylgjendum hennar. „Þú getur sagt þinn sannleika án þess að reyna að móðga aðra,“ sagði einn þeirra.
„Ég er að verða fyrir svo miklum vonbrigðum [með Britney],“ sagði annar.
Flestar athugasemdirnar við færsluna eru neikvæðar og hafa fjölmargir aðdáendur beðið Britney um að taka orð sín til baka og eyða færslunni.
Christina virðist líka hafa séð þessa umdeildu færslun því hún hætti að fylgja Britney á Instagram í kjölfarið. Britney birti þá aðra færslu og sagðist ekki hafa ætlað sér að gagnrýna „fallega líkama“ Christinu.
„Ég var alls ekki að gagnrýna fallega líkama Christinu, þetta er eins og þetta er!! Ég fór einu sinni á tónleika með henni og það sem ég tók mest eftir var hvað var mikill munur á fólkinu hennar á sviði og mínu! Ég minntist ekki einu sinni á Christinu, skoðið færsluna mína. Hún veitti mér innblástur og hún er falleg og öflug kona,“ sagði hún.
Britney sagði að hún hefði verið að tjá sig um óöryggi sem hún glímir við vegna framkomu foreldra sinna og fjölmiðla gagnvart henni í gegnum tíðina.
„Ég myndi aldrei viljandi líkamssmána einhvern því ég veit hvernig það er að verða fyrir því,“ sagði hún.
View this post on Instagram
Christina hefur ekki tjáð sig um málið eða færslur Britney að svo stöddu.