Það dreymir alla orðið um sól og sumaryl. Veturinn er búinn að vera langur og einvera og innilokun í hámarki út af heimsfaraldri.
Bandaríkjamaðurinn Rachel Waters ákvað að gera sér dagamun og skella sér í gervibrúnku til snyrtifræðings, því maður vill að sjálfsögðu fara til sérfræðings fyrir slíkt verk enda hefur maður alltof oft heyrt sögur og séð myndir af brúnkuslysum.
Rachel ákvað að fara til fagmanns og borgaði fyrir það rúmlega tíu þúsund krónur. Fyrstu vísbendinguna um að eitthvað væri að fara hryllilega úrskeiðis fékk hún þegar snyrtifræðingurinn mætti ölvaður í vinnuna. Tíminn sem Rachel átti bókaðan var klukkan átta um morguninn.
Snyrtifræðingurinn lofaði engu að síður að Rachel myndi ganga út af stofunni og líta út fyrir að vera nýkominn af sólarströnd. Annað kom þó á daginn.
Hún deildi þessu brúnkuslysi á samfélagsmiðlinum TikTok.
„Þú lítur út eins og þú hafir baðað þig upp úr kolum,“ skrifaði einn við myndskeiðið.
„Hahahahahah, þú ert eins og Ross í Friends í brúnkuslyss þættinum,“ skrifaði annar.
@superficialbiotch#greenscreen
Hér má sjá mynd af Ross úr Friends og svo Rachel fyrir neðan til samanburðar. (Finnst fleirum samanburðurinn enn fyndnari því þetta er Ross og svo Rachel, eða eru það bara við?)