fbpx
Sunnudagur 11.janúar 2026
Fókus

Guðrún eyddi Tinder eftir hræðilegt stefnumót með forstjóranum – „Þá skildi ég af hverju hann var alltaf með lokaðan munn á myndum“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 26. febrúar 2021 21:00

Mynd í bakgrunni: Pixabay - Mynd af Guðrúnu: Höfundamynd af Mannlif.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef farið á Tinder stefnumót. Fullt af þeim og þau hafa verið allt frá því að vera fróðleg og skemmtileg í að vera hreint út sagt krípí og furðuleg.  Allt hófst þetta þegar ég skildi fyrir fjórum árum eftir tveggja áratuga hjónaband. Tinder var það heitasta og fráskildir vinir mínir skráðu sig í hrönnum.“

Svona hefst ansi skemmtilegur pistill sem Guðrún Gyðe Eyþórs Árnadóttir, blaðamaður Mannlífs, skrifar en pistillinn birtist á vefsíðu Mannlífs í dag. Í pistlinum segir Guðrún frá slæmum stefnumótum sem hún fór á í gegnum Tinder en ef marka má sögurnar hennar voru þessi stefnumót vægast sagt hræðileg.

Fyrsta stefnumót Guðrúnar var við mann sem leit vel út á myndum og var kurteis í spjalli þeirra í gegnum netið. „Ég ákvað að einhvers staðar yrði ég að byrja og þáði kaffiboð. Þegar við hittumst var hann augljóslega kátur yfir að hitta mig og brosti sínu breiðasta. Þá skildi ég af hverju hann var alltaf með lokaðan munn á myndum,“ segir Guðrún.

„Hann var svo að segja tannlaus og þessar fáu tennur sem voru eftir í geiflunni voru svo að segja allar rotnaðar. Og lyktin maður! Ég skammast mín fyrir að segja það en ég afsakaði mig, sagðist þurfa á salernið og fót út um aðrar dyr. Hann er örugglega kátur í dag svo lengi sem grímuskyldan er við lýði.“

„Og eftir sat ég eins og fáviti“

Guðrún tók sér pásu frá stefnumótum eftir þetta en hún ákvað svo að prófa aftur. „Varla voru þeir allir tannlausir!“ segir hún en hinir mennirnir voru ekki fullkomnir heldur. „Aðrir höfðu sett in 10-20 ára myndir af sér grönnum og vel hærðum en mér mættu hálfsköllóttir karlar með ístru. Í eitt skipti mættu tveir karlmenn…..ég þarf ekki að segja meira um það og tvisvar mættu pör. Það þarf vart að taka fram að ég hitti engan af ofangreindum aftur og flúði um leið og tækifæri gafst.“

Þá segir Guðrún að margir hafi verið hreinskilnir á Tinder og sagt að það eina sem þeir vildu væri kynlíf. „Þeim var eytt snarlega,“ segir hún en það atvik sem situr fastast í henni er síðasta stefnumótið sem hún fór á í gegnum Tinder. Það stefnumót var með forstjóra sem bauð henni á einn dýrasta stað bæjarins.

„Hann mætti á undan mér og þegar ég settist niður og heilsaði sagði hann umsvifalaust: ,,Þú höfðar ekki til mín.” Og gekk út. Og eftir sat ég eins og fáviti. Og þá hætti ég og eyddi prófílnum.“

Guðrún segir að lokum að Tinder sé langt frá því að vera alslæmt. „Þótt það hafi ekki fært mér minn betri helming eignaðist ég góða vini enda gott fyrir einstæða konu að geta gripið í símann og beðið um hjálp þegar þvottavélin lekur. Maður getur jú ekki endalaust misnotað manngæsku eiginmanna vinkvenna sinna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ætlaði að hafna einu þekktasta hlutverki sínu – Kallaði hlutverkið „helvítis heimsku“

Ætlaði að hafna einu þekktasta hlutverki sínu – Kallaði hlutverkið „helvítis heimsku“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta voru vinsælustu kynlífstækin árið 2025 – „Landsmenn ófeimnir við að prófa sig áfram í pegginu“

Þetta voru vinsælustu kynlífstækin árið 2025 – „Landsmenn ófeimnir við að prófa sig áfram í pegginu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sydney Sweeney gyllt og nakin á forsíðu

Sydney Sweeney gyllt og nakin á forsíðu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ástvinir hafa verulegar áhyggjur af eyðslu söngkonunnar – Gæti endað blönk og heimilislaus

Ástvinir hafa verulegar áhyggjur af eyðslu söngkonunnar – Gæti endað blönk og heimilislaus
Fókus
Fyrir 4 dögum

Óttast viðtökurnar þegar hann kemur til Íslands – „Eiga allir eftir að hata mig?“

Óttast viðtökurnar þegar hann kemur til Íslands – „Eiga allir eftir að hata mig?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nær óþekkjanleg eftir að hafa skafið af sér 45 kíló

Nær óþekkjanleg eftir að hafa skafið af sér 45 kíló
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þórir kvartaði að karlmenn séu sagðir hættulegir og graðir – Saga skýtur fast til baka: „Það þarf ekki nema að googla nafnið þitt“

Þórir kvartaði að karlmenn séu sagðir hættulegir og graðir – Saga skýtur fast til baka: „Það þarf ekki nema að googla nafnið þitt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jói dans selur á Seltjarnarnesi

Jói dans selur á Seltjarnarnesi