fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fókus

Blaðamaður fórnar sér – Lifði af þrjá daga án matar

Erla Dóra Magnúsdóttir
Mánudaginn 15. febrúar 2021 22:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Föstur, til skemmri tíma, njóta sívaxandi vinsælda í dag, enda ekki á hverjum degi sem tískumataræði krefst þess ekki að þú eyðir gífurlegu fjármagni í próteinduft, kókoshveiti, stevíu, pálmasykur, ogguponsu lítið kolvetnabrauð á fermingargjafa-verði svo ekki sé minnst á strimla til að mæla pissið. Föstur snúast bara um það að borða ekki á ákveðnu tímabili, einfaldara gæti það líklega ekki verið.

Svelta fyrir guð

Vinsælastar eru styttri föstur, til dæmis 16:8 fastan þar sem þú fastar 16 klukkustundir á sólarhring og borðar venjulega hinar átta klukkustundirnar.

En lengri föstur þekkjast einnig. Föstur eru engan veginn nýtt fyrirbæri. Þær hafa verið stundaðar árþúsundum saman, oft í tengslum við iðkun trúarbragða, til dæmis ef guðinn sem þú tilbiður þjáðist á tilteknu tímabili og því þarft þú að þjást honum til samlætis reglulega, eða kannski krefst þinn guð þess að þú fastir til að vera hreinni og auðmjúkari frammi fyrir því guðlega. Eða bara til að sýna að þér sé ekki sama um guð þinn. Svona eins og fólk á það stundum til að svelta sig í tilhugalífinu til að ganga í augun á þeim útvalda, eða svelta sig fyrir útskriftarafmæli til að sýna stráknum sem neitaði að koma með þér á busaballið á sínum tíma hverju hann missti af.

Þó að blaðamaður hafi fyrir löngu gefist upp á að ganga í augun á fyrrverandi skólafélögum ákvað hann að prófa þriggja daga vatns-föstu. Í henni felst að í 72 tíma mátti blaðamaður aðeins drekka vatn, svart kaffi og te. Ekkert annað. Í rannsóknarskyni.

Algjört detox

Rannsóknir benda til að skemmri föstur á borð við 16:8 geti haft jákvæðar afleiðingar fyrir heilsufar á borð við lækkaðan blóðsykur, þyngdartap, aukin svefngæði, aukna orku, lækkað kólesteról, minnkað líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini og jafnvel hægt á öldrun. Nokkuð vel af sér vikið.

Hins vegar benda rannsóknir til þess að lengri samfelld fasta, þriggja daga eða lengri, hafi gífurlega jákvæð áhrif á ónæmiskerfið. Stofnfrumur fari að framleiða ný hvít blóðkorn og endurnýi þar með ónæmiskerfið. Slíkar föstur eiga líka að geta dregið úr magni tiltekinna ensíma sem hafa verið tengd við öldrun sem og hormóna sem auka líkur á krabbameini og æxlum. Fasta leiðir einnig til ferils sem kallast sjálfsát frumna þar sem líkaminn losar sig við skaddaðar og dauðar frumur. Bókstaflega algjört detox án þess að þurfa að pína ofan í sig gúrkusafa fimm sinnum á dag.

Rétt er þó að taka fram að föstur henta alls ekki öllum og því ráðlegt að ráðfæra sig við heimilislækni eða sérfræðilækni áður en lagt er í föstur.

Orkuleysi og höfuðverkur

Fyrsti dagurinn reyndist nokkuð auðveldur. Ég fann ekki fyrir miklu hungri nema rétt yfir kvöldmatartímann, en það gekk hratt yfir og hefur líklega frekar tengst vana heldur en eiginlegu hungri. Mér fannst auðvelt að sofna og svaf frekar vel.

Dagur tvö var erfiðari. Ég var orkulaus, svöng og villtir hestar hefðu ekki getað dregið mig fram úr rúminu ef ég hefði ekki neyðst til að mæta í vinnuna. Alveg sama hvað ég drakk fannst mér ég vera að drepast úr þorsta og íhugaði ítrekað að gefast upp. Það birti þó til með kvöldinu og ég hélt þetta út. Þarna fékk ég líka höfuðverk sem átti eftir að fylgja mér út föstuna. Samkvæmt frásögnum frá öðrum sem höfðu tekið þriggja daga föstu bjóst ég við allsherjar úthreinsun frá meltingarfærunum svo þegar þarmarnir gerðu vart við sig, hljóp ég spennt inn á bað til að sjá hvort þarna tækist mér ekki að losna við tyggjóklessurnar sem mamma sagði að kæmust aldrei í gegnum meltingarveginn. Ekki svo gott. Venjulegar hægðir og ekkert merkilegar.

Þriðji dagurinn var þungur á köflum. Fastan var farin að fara í skapið á mér og ég sveiflaðist á milli heilagrar stóískrar róar og brennandi pirrings. Helst langaði mig bara að hafa hægt um mig og sofa, en vinnandi manneskju stendur það ekki til boða. Ég fann einnig fyrir undarlegum þrota í vöðvunum. Eftir tíu mínútna símtal logaði á mér tvíhöfðinn eftir að hafa haldið á símanum og ég bölvaði sárlega yfir því að hafa ekki haft rænu á að verða mér úti um Bluetooth-heyrnartól eins og allt unga fólkið er með í dag. Það hefði sparað mér nokkra kvöl og pínu.

Engan hamborgara

72. klukkustundin rann upp og fastan var opinberlega búin. Hins vegar má ekki slíta svona föstu með hátíðlegri skrúðgöngu á Metro heldur þarf að fara ofurvarlega og hægt í sakirnar að vekja upp meltinguna aftur. Svo í staðinn fyrir hamborgara var það bolli af soði. Síðar smá súpa og smá stappað avókadó. Lykilreglan með lengri föstur er að verja tíma sem svarar til hálfrar föstunnar til að koma sér aftur í gang. Í mínu tilviki var það einn og hálfur sólarhringur en fyrir þá sem fasta í tíu daga væru það fimm dagar.

Ég ætlaði þó að leyfa mér eitt. Um leið og klukkan tilkynnti mér að föstunni væri lokið, 72 klukkustundum, þá hljóp ég spennt inn í eldhús og fékk mér sykurlaust gos, en ég er forfallinn Coke Zero fíkill og hef verið um árabil. Þá fékk ég fyrsta áfallið. Bragðið trausta áreiðanlega og góða var ekki svo gott lengur. Gosið var allt of sætt og eitthvert fúkkabragð af því. Vonbrigðin voru næstum áþreifanleg, en hey, kannski heyrir þessi fíkn nú sögunni til. Það var ekki fyrr en rúmlega degi eftir föstuna sem ég fékk mér aftur brauð. En þá líka hvarf höfuðverkurinn. Hann hefur þá líklega stafað af kolvetnafráhvarfi. Galið.

Allt í allt var þetta áhugaverð tilraun. Viku síðar er ég ekki enn farin að háma í mig af sama ákafanum og ég gerði áður og fastan lét mig líka horfast í augu við hvernig ég borða og hvers vegna. Er ég að borða af vélrænum vana, til þess að láta mér líða vel eða til þess að næra líkamann og hvernig vil ég haga matarvenjum mínum í framtíðinni? Ég lofa því ekki að vera varanlega frelsuð frá oki kleinuhringja og kóks. En ég er kannski aðeins meðvitaðri um að ég sé ekkert að fara að deyja úr hungri ef ég keyri fram hjá bakaríinu við og við.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar

Fór í trekant með kærustunni og vinkonu hennar – Það hafði ófyrirséðar afleiðingar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 5 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 1 viku

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu