Vinkonurnar Sunneva Einarsdóttir, Kristín Pétursdóttir, Birgitta Líf Björnsdóttir, Magnea Björg Jónsdóttir, Hildur Sif Hauksdóttir, Ína María Norðfjörð og Ástrós Traustadóttir, einnig þekktar sem LXS-skvísurnar, héldu litlu jól í gærkvöldi.
Þær deildu myndum frá kvöldinu í Instagram-story hjá sér.
Sjömenningarnir klæddust síðan í stíl, en þær voru allar í eins bleikum silki- eða satínnáttfötum. Mikið var um kræsingar hjá þeim, en á borðum mátti sjá girnilegar kræsingar og vín. Maturinn kom allavega að einhverju leiti frá Sælkerabúðinni, og vínin voru fjölbreytt, en sjá mátti freyðivín og rauðvín rapparans Snoop Dogg, sem ber heitið 19 Crimes: Cali Red.
Hér fyrir neðan má sjá myndir úr hittingnum, sem þær birtu á Instagram-síðum sínum.