fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Heilbrigðiskerfið ætti náttúrulega að heita sjúkdómakerfið“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 5. janúar 2021 14:26

Evert Víglundsson. Mynd/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evert Víglundsson, stofnandi og eigandi Crossfit Reykjavík er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Hann hefur í áraraðir hjálpað Íslendingum að bæta heilsu sína og hefur sterkar skoðanir þegar kemur að heilsu og heilbrigðiskerfinu.

„Heilbrigðiskerfið ætti náttúrulega að heita sjúkdómakerfið. Það er meira réttnefni. 80 prósent af kostnaði heilbrigðiskerfisins er vegna lífsstílssjúkdóma. Það þyrfti að koma öllu sem snýr að heilsu og heilbrigði mun meira inn í menntakerfið. Þekkingin á líkamanum og hvernig hann virkar er orðin það mikil að við getum mjög oft auðveldlega gripið inn í áður en fólk verður veikt. En það sem verið er að gera núna er að grípa eingöngu inn í eftir að fólk er orðið veikt, sem fyrir mér er algjörlega brengluð leið. Ef fólk sinnir svefninum sínum, næringu og hreyfingu vel á það að vera algjör undantekning að fólk sé veikt, en það er bara alls ekki þannig því miður. Ég hef persónulega engan áhuga á því að lifa lengi og vera veikur síðustu áratugina. Við þurfum að breyta umræðunni þannig að þetta snúist ekki bara um að lengja lífaldur, heldur að bæta heilbrigði við árin sem við lifum,“ segir hann.

Vinsæll ferðamannastaður

Evert átti eins og aðrir eigendur líkamsræktarstöðva vægast sagt skrýtið ár í fyrra.

„Rekstarlega séð er mitt fyrirtæki á góðum stað. Við höfum verið skynsöm og ef ég ætti að kenna einhverjum eitthvað sem er að fara í rekstur, væri það að byrja smátt og leyfa rekstrinum að vaxa. Frekar en að taka einhver bankalán og fara fram úr sér. En auðvitað er erfitt þegar lokað er bara á stærsta hlutann af tekjunum. Það renna að jafnaði 800 manns í gegnum stöðina á hverjum degi og nú er það bara ekki neitt. Svo komu líka gífurlega margir túristar í stöðina sem keyptu vörur og þjónustu. Það sagði mér einhvern tíma leigubílstjóri að Crossfit Reykjavík væri næstvinsælasti staðurinn fyrir túrista í borginni á eftir Hallgrímskirkju. Það var yfirleitt fullt hús af útlendingum og biðraðir í tíma hjá erlendu fólki. Það vita allir í Crossfit-heiminum af stöðinni. Ég held að það sé út af Annie Mist, sem er klárlega fyrsta ofurstjarnan í íþróttinni í heiminum,“ segir hann.

Erfið byrjun

Evert byrjaði með Crossfit Reykjavík áður en Crossfit var orðið þekkt fyrirbæri og fyrst um sinn þurfti að hafa verulega mikið fyrir því að halda starfseminni gangandi.

„Ég og Hrönn sem byrjuðum með fyrirtækið eftir að hún hafði verið með aðstöðu í bílskúrnu hjá sér gengum í öll störf og mættum hálf sex á morgnana og vorum að skúra hálf tíu á kvöldin. Það var þannig í allavega tvö ár og það var ekki verið að greiða mikil laun. Þeir sem hafa byrjað eitthvað alveg frá grunni þekkja að fara í gegnum svona tímabil. Og okkar nálgun var frá byrjun sú að það voru alltaf allir velkomnir frá byrjun og það var nálgunin okkar. CrossFit er rándýrt fyrirbæri í Bandaríkjunum og á mörgum öðrum stöðum og í raun munaðarvara og við vildum alls ekki fara þá leið.“

Hugsar um heilsuna

Evert, sem er þekktur fyrir að vera mikill heilsupælari og hefur hjálpað fólki að bæta heilsu sína í áratugi, segist sjálfur vera byrjaður að hugsa meira um langlífi. Borða minna og sjaldnar, hlúa vel að svefninum og öllu sem heitir endurheimt.

„Afreksíþróttir draga frekar úr langlífi heldur en hitt og geta í raun verið heilsuspillandi ef fólk er komið á hæsta „level“ og er að leggja óhóflega mikið á líkamann. Langlífi og afreksíþróttir eru upp að vissu marki andstæður,“ segir hann.

Í þættinum fara Evert og Sölvi yfir það hvað það er að vera heilbrigður, hvaða skref er hægt að taka ef fólk vill breyta um stefnu, hver eru algengustu mistökin og margt margt fleira.

Þátinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=varJR33srSg&t=319s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar