Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fyrrverandi borgarfulltrúi, og Kolfinna Von Arnardóttir, athafnakona, eru tekin aftur saman. Vísir greindi fyrst frá þessu.
Kolfinna og Björn giftu sig árið 2015 og eiga saman dóttur. Þau skildu á borð og sæng á síðasta ári.
Kolfinna birti mynd af þeim saman á Instagram í dag, en þar má sjá þau úti á landi saman, í einhverskonar laug.
Fókus óskar þeim til hamingju með þetta!
View this post on Instagram