Hópur aðdáenda raunveruleikasjónvarpsþáttanna vinsælu, Love Island, ætla sér að kvarta til breska sjónvarpseftirlitsaðilanum Ofcom eftir nýjasta Love Island þáttinn. Ástæðan fyrir reiði aðdáendanna er áskorun nokkur sem keppendur þáttana voru látnir taka þátt í.
Í áskoruninni sem um ræðir áttu keppendur að færa mat úr boxi, í munn annars keppenda og svo á disk. Áskorunin kallaðist Spit the Roast en áskorunin var nokkuð furðuleg, keppendur skyrptu mat upp í hvorn annan en auk þess byrjaði matarstríð þegar keppendur fóru að kasta mat í hvorn annan.
„Þessi mataráskorun var ógeðsleg. Vinsamlegast aldrei gera þetta aftur. Við erum líka ennþá með Covid í gangi,“ segir einn ósáttur áhorfandi þáttanna eftir að hafa séð nýjasta þáttinn. „Getum við öll verið sammála um að skrifa bréf til Ofcom eftir þessa áskorun svo við þurfum ekki að horfa á þetta í næstu seríum. Ég er í áfalli.“
Óhætt er að segja að áskorunin vekji upp viðbrögð hjá fólki en blaðamanni hér á ritstjórn DV blöskraði þegar hann leit yfir á skjáinn hjá undirrituðum og sá hvað fór fram í áskoruninni. „Þetta er algjör viðbjóður,“ sagði blaðamaðurinn. Annar blaðamaður á ritstjórninni lokaði svo augum sínum og eyrum því hann á eftir að horfa á þáttinn og bíður spenntur eftir því að sjá hvað áskorunin snýst um.
Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum sem sýnir áskorunina sem um ræðir: