Nýr og spennandi íslenskur söngleikur er í smíðunum þessa stundina. Söngleikurinn er byggður á lögum eins vinsælasta söngvara Íslands, Friðriks Dórs.
Söngleikurinn heitir eftir laginu Hlið við Hlið eftir Friðrik en leikhópurinn er skipaður af ungu og hæfileikaríku fólki. Má þar til dæmis nefna Kristinn Óla Haraldsson, sem einnig er þekktur sem Króli, Kötlu Njálsdóttur og Kolbein Sveinsson. Höskuldur Þór Jónsson mun leikstýra verkinu en hann skrifaði einnig handritið ásamt Berglindi Öldu Ástþórsdóttur.
Þetta unga fólk þekkist vel en flest þeirra hafa að einhverju leyti unnið saman áður. Þorri hópsins setti upp söngleikinn Ðe Lónlí Blú Bojs sem sýndur var reglulega fyrir fullum sal í Bæjarbíói. „Nú er markið sett hærra og ætlum við okkur stærri hluti,“ segir Berglind um sýninguna Hlið við Hlið.
Söngleikurinn Hlið við Hlið segir hjartnæma og litríka sumarsögu sem á sér stað á litlu sveitahóteli úti á landi. Borgarstrákurinn Dagur er orðinn þreyttur á tilverunni og ákveður að taka rútuna norður og sækja um vinnu á hótelinu. Það sem bíður hans er þó ekki alveg það sem hann átti von á, en ástar- flækjur og misskilningur verður til þess að lífið á hótelinu tekur oft óvænta stefnu.
„Útkoman er bráðfyndinn og skrautlegur tilfinningarússíbani þar sem við sögu koma fjölbreyttar og litríkar persónur.“