fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Gurrý segir að þetta geri þig betri í rúminu – „Þetta eru þrjár klukkustundir á viku, áttu þær til?“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 30. september 2020 15:52

Gurrý. Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Líkami sem fær enga hreyfingu verður eins og flotti fornbíllinn hans afa sem stóð alltaf til að gera upp, en hann var ryðgaður, dekkjalaus og þótt mögulegt hefði verið að koma honum í stand þá var ódýrara og einfaldara að kaupa nýjan bíl.“

Svona hefst pistill sem Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý, þjálfari og eigandi Yama Heilsurækt, skrifar en pistillinn birtist á Mannlíf í dag undir yfirskriftinni „Þú verður öflugri í rúminu með þessari einu lífsstílsbreytingu.

„Vandamálið við líkamann er að þú kaupir ekki nýjan – þú getur ekki fengið varahluti eða gert við hann án þess að það til komi lyf eða aðgerðir. Líkaminn þarf nefnilega hreyfingu, annars hrörnar hann og drabbast niður – sérstaklega þegar komið er yfir miðjan aldur, því fram að þrítugu finnur þú kannski ekki fyrir því, en eftir það þá þarf að borga brúsann,“ segir Gurrý.

„Þegar komið er á miðjan aldur þá fyrirgefur líkaminn ekkert. Þú sérð það á andlitinu á þér og finnur fyrir því í liðamótunum eftir dag eða daga af sukki, hvort sem það er í drykk eða mat og ef þú sérð það ekki þá ertu líklega í afneitun,“ segir Gurrý.

Hún gefur lítið fyrir að kaupa alls konar krem og fara í hinar og þessar meðferðir.  „Er það ekki eins og að pissa í skóinn sinn til að halda á sér hita?“ spyr hún „Það er skammgóður vermir að notast við töfralausnir og töfrakrem. Líkami sem er í góðu formi fyrirgefur betur einstaka daga þar sem farið er yfir strikið í kræsingum, því líkami í góðu formi á auðveldara með að vinna úr því sem í hann er sett.“

„Þú verður öflugri í rúminu“

Gurrý segir það vera nauðsynlegt að gera hlutina á jákvæðan hátt. „Við hreyfum okkur af því það er gott fyrir líkamann og á að vera skemmtilegt. Fyrsta æfingin verður kannski ekki sú skemmtilegasta, en hún á samt ekki að vera eins og afplánun fyrri synda – alls ekki,“ segir hún. „Því þá get ég lofað þér því að sú æfing verður líklega einnig sú síðasta. Það er dauðasynd að tengja hreyfingu við það að missa kíló, því þá gerirðu þér bara erfitt fyrir, vigtin fer að stjórna en ekki árangurinn af æfingunum. Hreyfðu þig til þess að líkami þinn haldi áfram að þjóna þér út ævina, en ekki til að vera flott á næstu árshátíð.“

Þá kemur Gurrý með „staðreyndir og ávinning“ þess að hreyfa sig. „Þér líður betur á líkama og sál, vöðvarnir byggjast upp, bólgur minnka,“ eru á meðal þess sem Gurrý nefnir. Þá nefnir hún einnig að meltingin og svefninn verði betri, orkan eykst, líkaminn mótast og streita minnkar. Að lokum nefnir hún að kynlífið verði betra. „Þú verður öflugri í rúminu – ég meina … betra form, meira úthald og fleiri möguleikar.“

Gurrý segist geta haldið áfram. „En ég veit líka að það er oft erfitt að taka fyrsta skrefið og byrja, ég tala nú ekki um á þessu blessaða ári 2020. Gerðu það samt fyrir þig – ekki bíða þangað til á næsta ári, því lengur sem þú bíður þeim mun lengri tíma tekur það að koma þér í gott form. Ekki bíða eftir betri tíma – við vitum ekkert hvað kemur næst,“ segir Gurrý.

„Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, þá mun hún ekki hafa tíma fyrir þig seinna. Við erum upptekin, svo upptekin að við erum uppgefin. Hugurinn tekur upp á því að hugsa um alls konar kjaftæði sem dregur úr okkur svo mikla orku að við setjum okkur í 10. sæti. Það er erfitt að brjóta upp þetta mynstur – en það er hægt, og það er þess virði.

Varðandi hreyfinguna, ekki hugsa – bara gera. Einstaklingur sem hefur ekki hreyft sig í meira en ár, er um 3-4 mánuði að komast á góðan stað með reglulegri hreyfingu þrisvar í viku og þá meina ég að allur ávinningurinn sem ég taldi upp er farinn að sýna sig. Þetta eru þrjár klukkustundir á viku, áttu þær til?“

„Það er aldrei of seint“

Að lokum segir Gurrý að hún sjái þetta daglega, fólk sem byrjar að æfa og byrjar að blómstra. „Það er aldrei of seint. Mundu að þú býrð alltaf að allri fyrri hreyfingu þinni, því líkaminn er svo magnaður að hver einasta æfing telur í bankabók heilsu hans.“

Hún botnar pistilinn með því að mæla með því fyrir byrjendur að finna góðan þjálfara sem. „Svo er ómetanlegt að æfa í góðum félagsskap, hvort sem þú ferð í hópþjálfun eða með góðum vini.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“