

„Ég laðast að því sem öðrum finnst vera afbrigðilegt eða skrítið eða fráhrindandi,“ segir fyrirsætan og listakonan Ágústa Ýr en það er ekki ofsögum sagt að hún fer sínar eigin leiðir. Ágústa Ýr býr í London og heldur úti Instagram-síðunni @IceIceBabySpice. Hún deilir list sinni og „memes“ á miðlinum með tæplega tíu þúsund fylgjendum sínum.
DV fjallaði um Ágústu Ýr í janúar síðastliðnum en þar kom fram að hún flutti frá Íslandi til Miami þegar hún var aðeins tveggja ára.
„Foreldrar mínir vildu að við systkinin myndum tala íslensku þannig það var regla heima að tala aðeins íslensku við þau heima. Þannig þetta var lítið íslenskt heimili í miðju Miami/Dade. Þegar ég var yngri vildi ég verða poppstjarna, dansari og fyrirsæta – ég er tvennt af þessu á einn eða annan hátt,“ sagði Ágústa en hún lýsir sér sem listakonu, leikstjóra, þrívíddar kunnáttukonu (e. 3D connoisseur) og meme drottningu. Þá sagði hún fegurð og líkamann drífa hana áfram í persónulegum verkefnum hennar. Undanfarin misseri hefur hún unnið með þekktum listamönnum og hönnuðum á borð við Nick Knight, Ellie Grace Cumming, Yang Li og Jeremy Scott.
Í nýlegu viðtali við Dazed Digital kemur fram að Ágústa sé í dag á skrá hjá umboðsskrifstofu í New York. Hún segist vera alin upp á „dæmigerðu íslensku heimili“ í Miami borg í Flórda.
„Ég var fimm ára þegar foreldrar mínir byrjuðu að setja mig í megrun og líkamsrækt,“ segir Ágústa í viðtalinu.

Hún segir foreldra hafa mjög fastmótaðar, hefðbundar hugmyndir um hvað sé fallegt og líklega hafi það haft áhrif á listsköpun hennar. Verkin hennar séu í andstöðu við þetta hefðbunda viðhorf. Ágústa Ýr vinnur einkum með þrívídd í listsköpun sinni og ögrar staðalímyndum um fegurð, kynjahlutverk og líkamsímynd.
View this post on Instagram
The dust bunnies in your lingerie drawer during quarantine 🧚🏻♀️ song @leylabluetoo 💙
Hún vill koma með jákvæð skilaboð til þeirra sem telja sig ekki eiga heima í tísku og listageiranum. Þeirra sem passa ekki inn í normið. Hún segir „bransann“ geta verið óvægan.
„Ég vil ná til fólks, sérstaklega ungs fólks, sem líður illa með líkama sinn, eða skammast sín jafnvel fyrir áhugamál sín, og sýna þeim að þau mega taka sér pláss. Það ætti ekki að nota fólk sem fellur ekki inn í normið til að tengja vörumerki við góðmennsku. Til dæmis fólk sem glímir við fötlun eða feitt fólk. Markmiðið ætti að vera að allir gætu notið sín og verið þeir sjálfir.