fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

„Mér leið eins og ég væri lítið ljótt leyndarmál sem enginn mátti komast að“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 15. maí 2020 11:48

Dagbjört Rúriks, eða DÍA eins og hún er kölluð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska söngkonan og áhrifavaldurinn Dagbjört Rúriks, eða DÍA eins og hún er kölluð, var að gefa út nýtt tónlistarmyndband við lagið „Love Me“.

Dagbjört er í bata frá meðvirkni og segir söguna frá því hvernig hún sigraðist á ofbeldi og hóf að byggja á ný heilbrigða sjálfsmynd.

„Ég byrjaði að semja „Love Me“ stuttu eftir að ég tók ákvörðun um að verða edrú á ný í fyrra. Ég var algerlega búin á því á líkama og sál,“ segir Dagbjört.

„Ég upplifði mig sem mjög brotna manneskju í langan tíma og þráði samþykki frá öðru fólki jafn mikið og ég hafnaði sjálfri mér. Þess vegna var aldrei neitt nógu gott fyrir mig, sama hve mikið ég sóttist eftir því eða ég eyðilagði fyrir sjálfri mér. Í undirmeðvitundinni leið mér eins og ég væri lítið ljótt leyndarmál sem enginn mætti komast að. Ég held að það hafi verið eineltið sem ég varð fyrir í grunnskóla sem olli þessu, ásamt ljótum orðum um mig sem ég trúði og ofbeldi af hálfu nákomnum aðila. Því minna sem mér þótti vænt um sjálfa mig því verr fór ég með mig,“ segir hún.

„Það veldur slæmri ákvarðanatöku og mistökum sem viðhalda vítahringnum og þróa hann líka. Því lengur sem ég var í honum því meira vildi ég flýja þar til ég fékk ógeð af sjálfri mér.“

Þýðingarmikið lag

„Í dag hef ég verið edrú í sex mánuði eftir mikla helgarneyslu. Ég þurfti botninn til að geta spyrnt mér upp og það var það sem ég gerði og um það snýst lagið. Að elska sjálfan sig upp á nýtt þrátt fyrir mistök, sýna sér samkennd í gegnum áföllin í staðinn fyrir að kvelja sig í fórnarlambaleik áfram,“ segir hún.

„Ég vona að einhver tengi og að tónlistarmyndbandið hjálpi fleirum sem finna sig á sama stað að elska sjálfan sig og að vita það að þau ein ráða hvernig líf þeirra spilast út. Ég er rosalega spennt að leyfa öllum að heyra þetta þýðingarmikla lag sem ég samdi og að sjá myndbandið sem snillingurinn hún Álfrún, besta vinkona mín tók upp. Endalaust þakklát fyrir hana.“

Horfðu á myndbandið hér að neðan.

Þú getur fylgst með DÍU á Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Í gær

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar