Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann er ekki frá því að eftir að samkomubannið vegna útbreiðslu COVID-19 var sett á þá hafi hann byrjað að tala meira við fólk en hann gerði áður, þrátt fyrir að mega ekki hitta það í persónu.
„Kannski er það þannig að erfiðar aðstæður dragi fram það besta í fólki. Ég er ekki frá því að maður geti fundið það á þessum síðustu og furðulegustu tímum,“ skrifar Logi í pistli sem birtist í Sunnudagsmogganum.
„Kannski er ég að ímynda mér þetta en mér finnst minni reiði á Facebook, minna yfirlæti á Twitter og klárlega færri rassamyndir frá útlöndum á Instagram. Þess í stað er komin einhvers konar óskipulögð hreyfing sem reynir frekar að horfa á björtu hliðarnar.“
Logi telur það mögulegt að með samkomubanni og faraldri hafi margar bestu hliðar samfélagsins fengið að njóta sín og jafnvel sé það svo að þessar aðstæður hafi þjappað okkur saman, í stað þess að sundra okkur.
„Mögulega hefur kórónuveiran náð að þjappa okkur saman. Sem hlýtur að teljast merkilegt í ljósi þess að það er hreinlega búið að banna okkur að koma saman – líkamlega. Ég er samt ekki frá því að ég tali meira við fólk núna en ég gerði áður en þessi ósköp dundu yfir.“
Breytingarnar í samfélaginu séu miklar, til að mynda sé línulegt sjónvarpsáhorf aftur farið að njóta sín og svo hafi líka sprottið fram allskonar orð sem við notum núna dagsdaglega, sem varla voru notuð áður, eins og sýnatökupinnar, samkomubann, hjarðofnæmi, sjálfklippingar og heimasóttkví.
En einnig séu komin nýyrði sem áður voru ekki til sem eigi það sameiginlegt að reyna að finna húmorinn við þessar erfiðu aðstæður.
Fimm nýyrði
Pestapó – Borgari sem tekur að sér að fylgjast með því að aðrir haldi fjarlægð, sóttkví, einangrun og helstu varúðarráðstafanir.
Heimaferðalag – Að reyna að gera gott úr því að vera heima hjá sér
Frostadamus – Sérfræðingur sem veit meira en allir sérfræðingarnir, jafnvel þótt hann hafi ekki menntun í tilteknu fagi.
Covidmágar – Menn sem hafa smitast af þeim sama
Fjartí – Fjarpartí í myndasamtali
„Ef einhver hefði sagt mér að við myndum öll bíða spennt eftir að geta hlaðið niður forriti í símana okkar sem getur rakið ferðir okkar í smáatriðum, þá hefði ég sennilega sagt að nú væri fólk endanlega búið að missa það. En furðulegir tímar kalla á furðuleg viðbrögð. Ég er bara ánægður á meðan þau felst í því að finna björtu hliðarnar á þessu öllu saman,“ skrifar Logi að lokum.