fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Frægir Íslendingar á lausu

Fókus
Sunnudaginn 19. apríl 2020 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Amor er ekki í sóttkví þó einhleypir íslendingar geti ekki leyft sér að stunda skemmtistaði. Það hreinlega rýkur úr Tinder þessa dagana en fyrirtækið býður notendum sínum upp á fría uppfærslu í svokallað Passport eða Vegabréf í viku til að stytta sér stundir. Það þýðir að notendur geta hlaðið upp stefnumótum eftir mun víðari staðsetningu en áður.

Þetta góða og eftirsótta fólk hérna á listanum er þó allt statt á Íslandi en skyldi það vera á Tinder?

Guðrún Sóley. Mynd: Torg

Guðrún Sóley Gestsdóttir

Fjölmiðlakonan Guðrún Sóley Gestsdóttir starfar á RÚV og hefur gefið út matreiðslubók. Guðrún státar af bjartasta brosi landsins og þykir einstaklega skemmtileg, fer í fjallgöngur og er sannkallað orkubúnt.

Jafet Máni. Mynd: IMDB

Jafet Máni Magnúsarson

Ungstirnið Jafet Máni er 22 ára gamall upprennandi sjónvarpstjarna. Jafet hóf feril sinn í Þjóðleikhúsinu þar sem hann lék í Kardimommubænum og er í dag með þættina Framm á við á Rúv núll þar sem hann ræðir við unga frumkvöðla og viðskiptafólk.

Bryndís Líf. Mynd: Instagram @brynnale

Bryndís Líf

Fyrirsætan og áhrifavaldurinn Bryndís Líf, 23 ára, greindi frá því í mars síðastliðnum að hún væri komin aftur á markaðinn. Bryndís leggur stund á sálfræði og þekkt fyrir að birta af sér djarfar myndir. Hún er með 27 þúsund fylgjendur á Instagram svo það þíðir ekki fyrir hana að krækja sér í feiminn kærasta.

Sara Sigmundsdóttir. Mynd: Volkswagen R.

Sara Sigmundsdóttir

Íþróttakonan Sara Sigmundsdóttir er fyrirferðarmikil í CrossFitt-heiminum og með 1,7 milljón fylgjendur á Instagram. Sara er einstaklega metnaðargjörn og jákvæð.

Áslaug Arna. Mynd: DV

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Áslaug Arna dómsmálaráðherra er ein eftirsóknarverðasta einhleypa kona Íslands í dag. Hún þykir mikil stemmingsmanneskja og hörkudugleg.

Halldór Armand. Mynd: DV

Halldór Armand

Halldór er rithöfundur sem slegið hefur í gegn með bókum á borð við Drón og Aftur og aftur en næsta bók hans kemur út í haust. Hann er hugsuður mikill, gullfallegur og hugmyndaríkur. Hann er einnig með fasta pistla á Rás 1.

Björg Magnúsdóttir. Mynd: DV

Björg Magnúsdóttir

Rithöfundurinn, sjónvarpskonan og gleðisprengja Björg er sannkallað kostabúnt. Landsmenn þekkja hana út þættunum Kappsmál standa þar sem hún kippir reglulega í munnvik áhorfenda með hnyttnum svörum og smitandi hlátri. Björg er einnig ein af höfundum sjónvarpsþáttanna Ráðherrann sem margir sjónvarpsunnendur bíða eftir með óþreyju.

 

Sigursteinn Másson. Mynd: DV

Sigursteinn Másson

Fyrrum fréttamaðurinn Sigursteinn Másson er einhleypur. Hann var í forsíðuviðtali hjá DV í síðustu viku og sagðist vera opinn fyrir ástinni. Myndarlegur maður með stórkostlega rödd.

Friðrik Ómar. Mynd: DV

Friðrik Ómar Hjörleifsson

Söngvarinn góðkunni er ættaður frá Dalvík, elskar Eurovision og er í hörkuformi. Hann er einnig ástríðukokkur með góðan húmor.

Simmi Vill.

Simmi Vill

Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson er skráður einhleypur á Facebook.

Tómas Lemarquis. Mynd: IMDB

Tommi Lemarquis

Leikarinn fransk ættaði Tómas Lemarquis hefur slegið í gegn í erlendum kvikmyndum á borð við Blade Runner 2049 og X-Men: Apocalypse.

Ingibjörg Dögg og Jón Trausti.

Ritstjórar Stundarinnar

Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjórar Stundarinnar, eru bæði einhleyp. Fantagóðir pennar, sjarmerandi bæði tvö og óhrædd við áskoranir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar