Listakonan Bergljót Arnalds tók við 114 ára gömlu húsi á Eyrarbakka fyrir rúmu ári. Allan þann tíma hafði aldrei verið sturta eða bað í húsinu en Bergljót réðist í það að brjóta niður skorstein með hjálp góðs fólks en það þurfti þrjá einstaklinga í að rífa þennan þrjóska skorstein niður.
Bergljót er bæði listkona mikil og handlagin en ekki þýddi annað en að virkja vini og vandamenn sem og fagmenn til að tryggja hreinlæti húsmóðurinnar vegna gífurlegra átaka sem þurfti við að bola skorsteininum burt. Allt fór þó á besta veg og nú er loks komin sturta sem Bergljót er alsæl með og birti af því tilefni þessa skemmtilegu mynd með orðunum: „Nú er hægt að baða sig 115 árum eftir að hús var byggt.“
https://www.facebook.com/bergljot.arnalds/posts/10158870714129321