fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Bækur fyrir ferðafíkla og þá sem vilja bæta fjárhagstöðu sína – „Lygileg saga“

Tobba Marinósdóttir
Sunnudaginn 22. nóvember 2020 20:00

Snæfríður er með ferðaþátt á N4 Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rithöfundurinn og fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir er tarnamanneskja. Hún les í törnum og er sérstaklega hrifin af handbókum og vill sínar bækur helst á pappírsformi.

Snæja, eins og hún er kölluð, býr og starfar á Akureyri en hefur verið með annan sandalaklæddan fótinn á Tenerife síðustu ár. Hún er meistari í húsaskiptum og skrifaði bók um listina að skiptast á heimilum sem og uppáhaldsstaðinn sinn Tenerife.

Hún byrjaði nýlega með ferðaþátt, Vegabréf, á norðlensku sjónvarpsstöðinni N4 þar sem ferðaþyrstir lands-menn geta ferðast með Snæju heima í stofu. Snæja og fjölskylda ferðast mikið og þá er alltaf pakkað niður bókum. „Það er ekki hægt að ferðast án þess að pakka nokkrum bókum með. Ég tek alltaf með mér bækur á pappírsformi. Yfirleitt eru þetta einhvers konar handbækur því ferðalög er kjörið að nýta til sjálfsskoðunar, en ef ég les skáldsögur þá er það einmitt frekar á ferðalögum en heima.“

Snæja las mikið sem barn en les nú mest handbækur af ýmsum toga, eitthvað lærdómsríkt og uppbyggilegt. „Þessar bækur þurfa að vera á pappírsformi því ef þær eru góðar þá strika ég undir helstu atriðin og hraðles þær svo aftur reglulega. Annars er hljóðbókarformið að koma skemmtilega á óvart og ég er farin að njóta þess meira.“

Fyrsta bókin sem hún las var að öllum líkindum Biblíusögubók. „Ég fékk mjög trúarlegt uppeldi og það var alltaf verið að halda einhverju Biblíutengdu að mér. En Ilmurinn eftir Patrick Süskind er líklega sú bók sem hefur setið hvað fastast í minninu. Hún er rosaleg.“

Hvaða bækur finnst þér mest spennandi fyrir þessi jól?
„Ég hef ekki kynnt mér úrvalið til hlítar en ég er nýbyrjuð á Þrír skilnaðir og jarðarför eftir Kristján Hrafn Guðmundsson sem lofar góðu. Á óskalistanum er svo nýja bókin hennar Sigríðar Hagalín og Sykur eftir Kötu Júl.“

 

5 uppáhalds bækur Snæju 

Spark your Dream eftir Candelaria og Hermann Zapp Útgáfuár: 2007
Hjónin Herman og Candelaria Zapp lögðu af stað út í heim frá heimili sínu í Argentínu til þess að ferðast í nokkra mánuði áður en þau færu að eignast börn. 19 árum og fjórum börnum seinna eru þau enn á ferðalagi. Bókin er margslungin saga sem er bæði spennandi og tilfinningaþrungin og kemur inn á gleðilega og sorg-lega tíma fjölskyldunar. Í bókinni útskýra hjónin einnig hvernig hægt er að lifa á ferðlagi án þess að eiga ferðasjóð!

Umsögn: „Þetta er sannsöguleg bók eftir argentínsk hjón sem ferðast hafa um heiminn undanfarin 20 ár í gömlum fornbíl. Lygileg saga um það hvernig hægt er að komast mjög langt á viljanum einum saman og láta ferðadraumana rætast þrátt fyrir lítil fjárráð.“

Spánn – Nýtt líf í nýju landi eftir Snæfríður Ingadóttir Útgáfuár: 2021
Nýjasta Bók Snæju er það eina sem kemst að í huga hennar sem s tendur

Umsögn: „Þessi bók er í algjöru uppáhaldi hjá mér þessa dagana og ég hugsa vart um annað en innihald hennar. Þetta er handbók sem fjallar um alla þá praktísku hluti sem þú þarft að vita ef þig langar til að búa á Spáni. Höfundurinn er ég sjálf og bókin fer í sölu í janúar.“

 

Sa lenge det er tvil er det håp eftir Lars Lillo Stenberg Útgáfuár: 2001
Ljóðabókin eftir norska listamanninn Lars Lillo Stenberg hefur verið endurútgefin ítrekað vegna vinsælda

Umsögn: „Þetta er norsk ljóðabók sem ég fletti reglulega. Hún kallar fram góðar minningar um námsárin í Noregi og lífið í heild sinni enda Lars Lillo snillingur í að orða hlutina á svo fallegan hátt, sama hversu hversdaglegir þeir eru. Ég verð alltaf meyr við að fletta þessari bók.“

 

Eyland eftir Sigríði Hagalín Útgáfuár: 2016
Eyland er hrollvekjandi ástar- og spennusaga, þar sem Íslandssagan tekur óvænta stefnu. Hjalti og María slíta ástarsambandi sínu og skyndilega er allt breytt. Stundum gerast svo stórir atburðir að þeir sameina allt mannkyn, eina örskotsstund, eins og slinkur hafi komið á þyngdaraflið og þjappað öllum heiminum saman. Einbúi í eyðifirði óttast ekkert meira en að björgunarsveitirnar finni hann. Á meðan hann bíður skrifar hann annál þess sem á undan er gengið.

Umsögn: „Það ættu allir að lesa þessa bók, sérstaklega á tímum Covid. Þá er eiginlega enn rosalegra að hlusta á Eyland sem hljóðbók því höfundurinn les sjálfur sem gerir bókina enn trúverðugri fyrir vikið þar sem allir þekkja rödd Sigríðar úr fréttunum og eitt aðalumfjöllunarefni bókarinnar eru fréttir af því þegar Ísland einangrast frá umheiminum.“

Ríki pabbi, fátæki pabbi eftir Roberts Kiyosak Útgáfuár:1997
Ríki pabbi, fátæki pabbi (Rich Dad Poor Dad) hefur verið ein mest selda bók um fjármál einstaklinga síðan hún kom út. Bókin þykir mjög góð en það kom vissulega skuggi á feril höfundar þegar félag hans sem kom að útgáfu bókarinnar var tekið til gjaldþrotaskipta 2012 vegna vanefndra samninga. Róbert hefur gefið út tugi bóka um fjármál sem og eiginkona hans Kim. Robert gaf einnig út bók með Donald Trumpm

Umsögn: „Kannski klisja að nefna þessa bók en hún er einfaldlega skyldulesning fyrir alla þá sem vilja bæta fjárhagsstöðu sína.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi