Útvarpsmaðurinn góðkunni Þorkell Máni Pétursson, Máni í Harmageddon, varð fyrir því óláni að ekið var á bifreið hans þar sem hún stóð í bílastæði við Suðurlandsbraut.
Þorkell Máni birtir mynd af bílnum í færslu á Twitter þar sem hann lýsir eftir sökudólgnum og biður henn endilega um að heyra í sér. Þar segir hann að svo virðist sem viðkomandi hafi ekki tekið eftir því að hafa keyrt á bílinn eða hreinlega gleymt að láta vita.
„Ef viðkomandi er að leita að mér endilega heyrðu í mér.“
Það lendi einhver i að keyra á bílinn minn fyrir utan suðurlandsbrautina og taka ekki eftir því eða bara gleymt að láta mig vita. Ef viðkomandi er að leita af mér endilega heyrðu i mer. pic.twitter.com/6Y4PzpKC1f
— Máni Pétursson (@Manipeturs) January 6, 2020