fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Fókus

Nýi kærastinn stendur þétt við bakið á Selmu í Tel Aviv

Fókus
Mánudaginn 13. maí 2019 10:49

Hér sést Kolbeinn Tumi fyrir aftan Selmu og þau umkringd förðunar- og hárgreiðslufólki. Mynd: Skjáskot af Instagram @emmanuelross_nyc.art

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngkonan Selma Björnsdóttir er í Tel Aviv í tilefni Eurovision-keppninnar, en Selma tróð upp á Euro Club, opinberum skemmtistað Eurovision-keppninnar, um helgina.

Henni til halds og trausts var nýi kærasti hennar, Kolbeinn Tumi Daðason. Kolbeinn er fréttastjóri Vísis og er einnig í Ísrael vegna vinnunnar, þar sem hann skrifar pistla á visir.is.

Kolbeinn Tumi birti þessa mynd í sögu sinni á Instagram. Mynd: Skjáskot af Instagram @kolbeinntumi

Selma og Kolbeinn hafa verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið, eins og DV hefur áður sagt frá. Hamingjan geislar af þeim í Tel Aviv og fylgdist Kolbeinn vel með undirbúningi Selmu áður en hún steig á svið í Euro Club. Má segja að Selma hafi fengið stjörnumeðferð, enda mikil stjarna, jafnt innan Eurovision-samfélagsins og utan, og var stjanað við hana á hótelinu í Tel Aviv.

Tilbúin í Euro Club. Mynd: Skjáskot af Instagram @emmanuelross_nyc.art
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Fyrir 4 dögum

Orlando Bloom birtir óræð skilaboð eftir sambandsslitin

Orlando Bloom birtir óræð skilaboð eftir sambandsslitin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Afhjúpar það sem sonur hans sagði við hann rétt áður en hann gekk fram af klettabrúninni

Afhjúpar það sem sonur hans sagði við hann rétt áður en hann gekk fram af klettabrúninni