fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Manuela segir fólk finna þörf fyrir að rífa hana niður: „Það hefur alltaf böggað mig“

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 21:00

Manuela stígur út fyrir þægindarammann. Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilsulindin Even labs opnaði nýverið í Faxafeni en hún er rekin af þeim Manuelu Ósk Harðardóttur, Snorra Magnússyni og Arnari Arinbjarnarsyni. Undirbúningsferlið tók langan tíma en sameiginlegur vinur leiddi þríeykið saman.

„Já, við vorum öll í svipuðum pælingum hvert í sínu horninu en vorum fyrir hálfgerða tilviljun tengd saman sem var upphafið að þessu samstarfi,“ segir Manuela og heldur áfram: „Þetta hefur verið langt ferli en við búum yfir ólíkum styrkleikum og vinnum rosalega vel saman. Á þessu eina og hálfa ári síðan fyrsti fundur var haldinn höfum við ferðast til Finnlands og Bretlands þar sem við heimsóttum sýningar tengdar þessum efnum svo óhætt er að segja við séum öll búin að vinna mikla heimavinnu. Pælingin á bak við heilsulindina var alltaf að breytast þótt grunnurinn hafi haldið sér. Við erum með stóra sýn og mikla drauma en okkur langar að byggja og bæta við meðferðum. Það er alltaf eitthvað nýtt að koma á markaðinn svo þetta er í stanslausri þróun og því gríðarlega spennandi. Okkur langar að vera með puttann á púlsinum hvað það varðar og sjáum þetta fyrir okkur sem lífsstíl. Allar meðferðirnar hjá okkur er eitthvað sem þú átt að stunda og engin getur á nokkurn hátt reynst skaðleg. Hægt er að koma daglega í þær allar og þess vegna mælum við eindregið með því að fólk kynni sér áskriftarleiðir, rétt eins og um kort sé að ræða í ræktina. Þá mætir maður daglega, eða eftir hentisemi, því þetta er líkamsrækt í formi vellíðunar.“

Manuela stofnaði nýverið Even Labs. Mynd: Eyþór Árnason

Manuela ítrekar að meðferðirnar snúist minna um útlit en fólk haldi.

„Auðvitað pælum við öll í því hvernig við lítum út en í grunninn snýst þetta meira um það hvernig við getum bætt lífsgæðin, og liðið betur, sofið betur og jú að öll starfsemi líkamans sé betri. Ég hef sjálf lengi verið að þreifa fyrir mér af persónulegum ástæðum enda hef ég glímt við ýmiss konar vandamál. Ég á erfitt með svefn og þarf ekki mikinn svefn en langvarandi svefnleysi er mjög slæmt og í kjölfarið dettur maður í vítahring streitu og kvíða. Margar af þessum meðferðum hafa hjálpað mér mikið varðandi það.“

Stöðug barátta þótt við séum að brillera

Samhliða fyrirtækjarekstrinum hefur Manuela haldið utan um keppnina Miss Universe Iceland undanfarin fjögur ár ásamt því að vinna með fyrirtækjum hér heima, hún viðurkennir að álagið sé á köflum yfirþyrmandi.

„Þetta hefur verið rosaleg vinna, samhliða öllu hinu, en ég er að sinna tuttugu stelpum í keppninni og ferðast úti um allan heim með þeim. Nú í vetur verð ég líka í þættinum Allir geta dansað og það er mikil vinna og margir klukkutímar sem fara í æfingar þar. Ég er algjörlega að stíga út fyrir þægindarammann þar en það verður bara spennandi. Að því sögðu er ég einstæð móðir og sinni því starfi af mikilli alvöru. Þrátt fyrir að ég sé að gera alla þessa jákvæðu hluti finnur fólk þörf hjá sér að rífa mig niður. Ég fæ til að mynda endalausar spurningar um hvar börnin mín séu þegar ég er stödd erlendis í vinnuferðum. Það hefur alltaf böggað mig því ég veit það best sjálf að ég sinni börnunum mínum mjög vel,“ segir Manuela og heldur áfram: „Þetta er svo langþreytt vandamál með konur að vera í stöðugri baráttu að þurfa að sanna að við séum að standa okkur þótt við séum alveg að brillera í þessu lífi. Það er ennþá þetta „vibe“ í þjóðfélaginu að konur geti ekki gert allt sem þær vilja ef þær eru mömmur. Okkur eru ósjálfrátt settar hömlur á því og mér finnst það glatað því ég er frábær fyrirmynd fyrir börnin mín með því að sýna þeim að maður geti látið drauma sína rætast. Ég átti þetta samtal einmitt við ömmu í vikunni, en hún er mín besta vinkona og þekkir mig betur en allir. Það stingur mig að bara vegna þess að ég vinn mikið og hef gríðarlegan metnað, ég vil áorka miklu í lífinu og langar að framkvæma hugmyndirnar mínar, en þá finnst mér ósjálfrátt eitthvert samasemmerki milli þess að ganga vel og vera upptekin, eins og maður eigi alltaf að vera alveg á fullu. Staðreyndin er bara sú að við konur þurfum alltaf að sanna okkur miklu meira og þessari hugsun þarf að breyta. Sömuleiðis því hvar fjölmiðlar setja sínar áherslur, í gegnum allt sem ég geri vil ég leggja áherslu á samstöðu kvenna og vissulega hefur orðið vakning í þeim efnum, margar flottar konur eru sammála mér þar en samt er þessi undirtónn alltaf til staðar. Ég held að það sé alveg kominn tími á að allir fái að gera sitt í sátt.“

Manuela hefur nóg að gera.

Hef séð fólk ganga út þremur kílóum léttara

Hugmyndina að heilsulindinni fékk Manuela þegar hún var búsett í Los Angeles en hún er að eigin sögn mikill aðdáandi hvers kyns úrlausna þegar kemur að andlegri og líkamlegri vellíðan.

„Svona lagað hefur aldrei verið gert hér á landi og við leggjum mikla áherslu á að skapa rétt andrúmsloft. Það skiptir miklu máli að heildarupplifunin sé skemmtileg og öðruvísi.“

Þegar talið berst að þeim meðferðum sem í boði eru nefnir Manuela fyrst svokallaða Redlight meðferð sem hún segir vera allra meina bót.

„Hún hefur hjálpað svo mikið, ég sé það bara á mínum nánustu. Ég er sjálf með svona græju heima og trúi því staðfastlega að þessar tíu mínútur á dag sem ég fæ með þessum geislum bæti mína líðan. Eins erum við með geggjaða Sweat meðferð þar sem þú svitnar í hitateppi en hitinn getur farið upp í 85 gráður. Þetta er frábær leið til að afeitra líkamann og slökun um leið því þarna ertu með Netflix og heyrnartól og slakar á meðan teppið sér um að hreinsa líkamann, svo er þetta svo gott fyrir húðina og bætir sömuleiðis svefninn til muna. Ég hef séð fólk ganga út allt að þremur kílóum léttara en vökvasöfnun er oft svo mikil og þetta losar vel um hana. Ég var sannfærð frá fyrstu stundu um að vilja hafa Sweat meðferðina hjá okkur því ég hef stundað hana í fjögur ár frá því ég bjó í LA en síðan erum við með kuldameðferð sem er staðbundin fyrir líkamann og andlitsgrímu sem frystir andlitið niður í mínus 50 gráður, en það er einmitt ástæða þess að meðferðin stendur aðeins yfir í tvær mínútur. Þetta er mjög árangursrík leið til þess að draga úr bólgum í andliti og kemur blóðflæðinu vel af stað, líkaminn sjokkerast svo mikið og reynist sérstaklega árangursríkt fyrir fólk sem er að kjást við hausverk og streitu í öxlum. Sogæðanuddið er svo eitthvað sem allir íþróttamenn ættu að þekkja, enda er það notað um allan heim og gott eftir mikla áreynslu. Það kemur bæði jafnvægi á blóðflæði og losar um bjúg. Lúmskasta meðferðin er hins vegar hljóðbylgjudýnan, þar getur maður valið um þrjár stillingar og ég viðurkenni að persónulega hafði ég ekki trú á þessu fyrr en ég prófaði sjálf. Fyrir manneskju sem sefur ekki þá lagðist ég niður og steinsofnaði um leið, mér leið eins og ég hefði sofið í marga klukkutíma sem var alveg magnað.“

Og viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa því á þessari tæpu viku síðan fyrirtækið var opnað hefur verið fullt út úr dyrum í Faxafeni þar sem heilsulindin er staðsett.

„Já, þetta hefur gengið svakalega vel og við vinnum rosalega vel saman. Ég hef aldrei farið út í neitt þessu líkt áður og þetta hefur verið mikill lærdómur fyrir mig á margan hátt. Ég er stolt af því sem við náðum að gera þótt vissulega hafi komið tímabil þar sem mér féllust algjörlega hendur en svo peppast maður aftur upp. Þetta hefur kennt mér að ef maður ætlar sér eitthvað og leggur hart að sér getur maður hvað sem er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Seldist hratt upp á Nick Cave – Aukatónleikar boðaðir

Seldist hratt upp á Nick Cave – Aukatónleikar boðaðir
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikkonan stórglæsileg í nýju myndbandi og kom aðdáendum skemmtilega á óvart

Leikkonan stórglæsileg í nýju myndbandi og kom aðdáendum skemmtilega á óvart