fbpx
Mánudagur 24.nóvember 2025
Fókus

Ellý spáir fyrir Þorgerði Katrínu: „Þú þarft að velja annaðhvort hægri eða vinstri.“

Fókus
Föstudaginn 8. nóvember 2019 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ellý Ármanns var gestur í útvarpsþættinum Ísland vaknar á K100 í morgun. Hún var að spá fyrir hlustendum og las meðal annars í tarot spil Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar og þingmann.

Ásgeir Páll, útvarpsmaður, segir við Þorgerði Katrínu að þeim langi svo að vita hvort hún verði næsti útvarpsstjóri að þau ákváðu að fá Ellý til að spá fyrir henni.

„Bara svona til að upplýsa ykkur þá er ég ekki að fara að sækja um eitt eða neitt starf,“ segir Þorgerður Katrín.

„Það sem ég er að gera núna er að spá fyrir hlustendum og nú er ég að spá fyrir þér,“ segir Ellý við Þorgerði.

„Ég er að skoða hvað er í framtíðinni hjá þér og núna […] Það kemur fram að þú ert alveg hlaðin verkefnum. Þorgerður þú ert hlaðin verkefnum, það er nóg að gera hjá þér, enn gaman. Það er gaman hjá þér, hér er einn maður, riddari á hvítum hesti,“ segir Ellý.

„Það er talað um að það séu verkefni og þú átt mjög auðvelt með að tækla hvaða verkefni sem verður á vegi þínum. En hér er komið inn á val. Hér er komið inn á val. Þú þarft að velja annaðhvort hægri eða vinstri. Það eru tvö tilboð á borðinu. Eitt nú þegar komið til hennar sem hún má örugglega ekki tala um,“ segir Ellý.

Ellý segir þetta þó ekki snúast um að Þorgerður fari aftur í Sjálfstæðisflokkinn.

„Það er verið að tala um það að nú er draumur hennar að rætast. Þessi kona er sterk og aðlaðandi og hún er félagslynd og hún er með þetta allt. Hún er með öll tromp á hendi, en núna er draumur hennar að fara að rætast. Hún fær heiminn,“ segir Ellý. Hún bætir við að Þorgerður þurfi líka að „hreinsa áður en hún heldur áfram.“

„Og áður en hún stígur inn í þetta á hún eftir að setja sér mörk því fyrri reynslu, hún þarf að hugsa um fyrri reynslu sem var erfið en hún er liðin og þess vegna setur hún sér mörk og hún á eftir að standa sig svo vel að það er dásamlegt.“

Að lokum segir Ellý við Þorgerði: „Haltu áfram að vera þú. Við þurfum fyrirmynd eins og þig.“

„Takk elsku Ellý, ég vildi óska þess að ég gæti faðmað þig í gegnum símann,“ segir Þorgerður.

„Þú ert að því,“ segir þá Ellý.

Horfðu á Ellý spá fyrir Þorgerði í myndbandinu hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég er ennþá smá pirruð yfir að hafa ekki fengið að klára bókina áður en þjófurinn fékk hana“

„Ég er ennþá smá pirruð yfir að hafa ekki fengið að klára bókina áður en þjófurinn fékk hana“
Fókus
Í gær

Linda og Gústi fóru í gegnum lífið hlið við hlið án þess að hittast þar til alheimurinn leiddi þau loks saman – „Við höfum ekki farið í sundur síðan“

Linda og Gústi fóru í gegnum lífið hlið við hlið án þess að hittast þar til alheimurinn leiddi þau loks saman – „Við höfum ekki farið í sundur síðan“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Allt annað að sjá söngvarann – 90 kílóum léttari og rakaði skeggið í fyrsta skiptið í tíu ár

Allt annað að sjá söngvarann – 90 kílóum léttari og rakaði skeggið í fyrsta skiptið í tíu ár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Magnús gefur nýju mynd Braga Þórs slappa dóma – „Margrét fannst mér í mesta brasinu“

Magnús gefur nýju mynd Braga Þórs slappa dóma – „Margrét fannst mér í mesta brasinu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Mobb Deep með tónleika á Íslandi í mars

Mobb Deep með tónleika á Íslandi í mars
Fókus
Fyrir 3 dögum

Egill varpaði sprengju um jólalög og margir tóku undir – „Þetta er komið út í algjöra dellu“

Egill varpaði sprengju um jólalög og margir tóku undir – „Þetta er komið út í algjöra dellu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóttir Claudiu Schiffer tvífari móður sinnar

Dóttir Claudiu Schiffer tvífari móður sinnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Opnar sig um dulið fósturlát

Opnar sig um dulið fósturlát