fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Fókus

Mynd dagsins: „Þessi er svo flottur að mann hlakkar til að deyja!“

Fókus
Miðvikudaginn 9. október 2019 14:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt stykki Volvo 90 bíll af árgerðinni 2019 er nú á leiðinni til landsins frá Svíþjóð.

Það er ekki til frásögu færandi nema hann er mun lengri en gengur og gerist, þessi Volvo bíll er nefnilega útfararbíll. Útfararstofa Kirkjugarðanna deildi færslu á Facebook síðu sinni í dag þar sem fréttirnar voru tilkynntar.

„Glæsilegasti útfararbíll landsins fór í skip í dag, í Svíþjóð. VOLVO 90 – 2019, lengdur um 85 cm. Getur flutt tvær líkkistur saman. Bíllinn er sérhannaður fyrir íslenskar aðstæður og fyrir Útfararstofu Kirkjugarðanna. Við erum ávallt í fararbroddi.“

Viðbrögðin létu ekki á sér standa en fólk dáðist að bílnum í athugasemdum við færsluna. Maður nokkur sagði þetta vera framtíðarbílinn sinn en það munu eflaust margir íslendingar fá tækifæri til að fá að fljóta með í þessari bifreið í framtíðinni.

„Þessi er svo flottur að mann hlakkar til að deyja!“ sagði síðan annar maður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina

Útgáfuteiti á föstudag: Hugmyndir um Ísland og Grænland í gegnum tíðina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson

Síðasti Sjens 2025 – Stórtónleikar Retro Stefson
Fókus
Fyrir 4 dögum

Orlando Bloom birtir óræð skilaboð eftir sambandsslitin

Orlando Bloom birtir óræð skilaboð eftir sambandsslitin
Fókus
Fyrir 4 dögum

Afhjúpar það sem sonur hans sagði við hann rétt áður en hann gekk fram af klettabrúninni

Afhjúpar það sem sonur hans sagði við hann rétt áður en hann gekk fram af klettabrúninni