fbpx
Sunnudagur 02.nóvember 2025
Fókus

Coot – What a catch! sigraði  í Hnakkaþoni, útflutningskeppni sjávarútvegsins

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 28. janúar 2019 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Háskólanemar vilja nota gervigreind til að selja ungum Bandaríkjamönnum íslenskan fisk á netinu

Sigurlið Hnakkaþonsins 2019 leggur til að Icelandic Seafood selji íslenskan fisk beint til ungra bandarískra neytenda undir eigin vörumerki, Coot, sem leggi áherslu á hreinleika, sjálfbærni og íslenskan uppruna. Með hjálp gervigreindar megi sérsníða markaðsskilaboð og auglýsingar að smekk og þörfum hvers neytanda. Hópurinn bendir einnig sérstaklega á vænlegan markhóp í Seattle í Washington, en þar sé mikið af ungu fólki með góðar tekjur sem sé reiðubúið að greiða hærra verð fyrir matvörur í háum gæðaflokki.

Úrslit Hnakkaþonsins 2019 voru kynnt í Háskólanum á laugardaginn. Sigurliðið skipa: Anton Björn Sigmarsson, nemi í hátækniverkfræði, Serge Nengali Kumakamba, meistaranemi í lögfræði, Gabríela Jóna Ólafsdóttir, nemi í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein, Lísa Rán Arnórsdóttir rekstrarverkfræðinemi og Sólrún Ásta Björnsdóttir, tölvunarfræðinemi.

Í Hnakkaþoni HR og SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, reyna nemendur HR með sér í lausn verkefna sem tengjast íslenskum sjávarútvegi. Samstarfsfyrirtækið í ár var Iceland Seafood International sem selur, framleiðir og markaðssetur sjávarafurðir um allan heim. Nemendur þurftu að nýta þekkingu sína á markaðsmálum og áætlanagerð og setja fram áætlun um markaðssetningu á fiski til afmarkaðs neytendahóps að eigin vali og líta til framtíðar í lausnum sínum.

Liðin fengu verkefnið í hendur á fimmtudaginn og kynntu lausnir sínar fyrir dómnefnd á hádegi á laugardaginn. Dómnefndina skipuðu Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International, Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo og Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild HR.

Sigurliðið mun heimsækja Seafood Expo North America, stærstu sjávarútvegssýningu N-Ameríku í Boston í mars, í boði Icelandair Group og sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Skilnaðarlögfræðingur um hvort karlar eða konur halda meira framhjá – Svarið gæti komið þér á óvart

Skilnaðarlögfræðingur um hvort karlar eða konur halda meira framhjá – Svarið gæti komið þér á óvart
Fókus
Fyrir 2 dögum

Allt annað að sjá Brad Pitt – Sjáðu myndina

Allt annað að sjá Brad Pitt – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vill losna við Scott úr lífi sínu og raunveruleikaþáttunum – Íhugar að setja fjölskyldu sinni afarkosti

Vill losna við Scott úr lífi sínu og raunveruleikaþáttunum – Íhugar að setja fjölskyldu sinni afarkosti
Fókus
Fyrir 3 dögum

Patrekur klæddi sig upp sem Victoria‘s Secret fyrirsæta – Sjáðu hvernig hann fór að þessu

Patrekur klæddi sig upp sem Victoria‘s Secret fyrirsæta – Sjáðu hvernig hann fór að þessu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vill breyta nafni dóttur sinnar eftir nauðgunardóminn

Vill breyta nafni dóttur sinnar eftir nauðgunardóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hallgrímur lýsir hremmingum sínum í umferðinni í dag – „Leiðin gekk ljómandi vel, meðalhraði var u.þ.b. 7 km á klst.“

Hallgrímur lýsir hremmingum sínum í umferðinni í dag – „Leiðin gekk ljómandi vel, meðalhraði var u.þ.b. 7 km á klst.“