Íþróttakonan Katrín Tanja Davíðsdóttir er komin á fast. Hún birti mynd af sér og nýja kærastanum á Instagram fyrir stuttu. Með myndinni skrifar hún: „Ég veit ekki með ykkur en mér finnst hann frekar sætur.“
https://www.instagram.com/p/B1CbfjvFq7U/
Sá heppni heitir Streat Hoerner og er einnig CrossFittari, ekki við öðru að búast enda er Katrín Tanja ein skærasta stjarnan í CrossFit heiminum.
Hún hefur í tvígang unnið titillinn Hraustasta kona heims í CrossFit, árin 2015 og 2016, og var í 4. sæti á Heimsleikunum í CrossFit 2019, sem voru síðustu helgi.
Við vitum ekki mikið um Streat, en hér eru nokkrir hlutir sem við vitum:
Hann keppti á heimsleikunum í ár.
https://www.instagram.com/p/B0lbwd-ghgO/
Hann hefur komið til Íslands:
https://www.instagram.com/p/BxLJRMOgpZT/
Hann kann að róa bát:
https://www.instagram.com/p/Bx5IR2yAdpS/
Hann hefur farið upp esjuna.
https://www.instagram.com/p/Bw-BonvAKjl/
Katrín Tanja hefur verið að njóta lífsins síðan hún keppti á heimsleikunum og hefur verið að ferðast með Streat. Þau eru um þessar mundir stödd í Sviss. Katrín Tanja hefur verið að birta myndir af kærastanum í Instagram Stories síðastliðna daga, og birti meðal annars þessar í dag.
Fókus óskar parinu innilega til hamingju!