fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Ásta Hrafnhildur selur glæsieign í Garðabæ – Fjölmiðlakona færir sig um set

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 23. júlí 2018 11:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um er að ræða sex herbergja íbúð með rishæð í Hrísmóum, íbúðinni fylgir bílskúr og er eignin alls 174 fm. Frábært útsýni er úr íbúðinni, enda er hún miðsvæðis í Garðabænum.

Ásta Hrafnhildur er Garðbæingum vel kunn, enda búsett þar alla ævi og hefur hún starfað þar sem kennari auk þess að vera dugleg í starfi tengt íþróttum sonanna þriggja sem allir hafa æft og spilað með Stjörnunni.

Ásta Hrafnhildur hefur einnig verið vel þekkt meðal þjóðarinnar, fyrst sem umsjónarmaður Stundarinnar okkar, þar sem hinn sívinsæli Keli var kynntur til sögunnar. Og síðar sem blaðamaður og ritstjóri á Séð og Heyrt. Ásta Hrafnhildur starfar í dag sem blaðamaður á Fréttablaðinu, auk þess að vera með föst innslög í Brennslunni á FM957.

Ásta Hrafnhildur keypti eignina í Hrísmóa árið 2016, eftir að hún seldi fyrri eign, sem hún og seinni barnsfaðir hennar áttu saman. Nýlega fékk hún nýtt hlutverk, þegar fyrsta ömmubarnið kom í heiminn þann 26. júní síðastliðinn.

Hver ástæðan er fyrir sölunni á Hrísmóa mun líklega koma í ljós von bráðar, en væntanlega mun Ásta Hrafnhildur halda sig við Garðabæinn.

Nánari upplýsingar um eignina má fá hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr
Fókus
Fyrir 3 dögum

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?

Svona þrífur hún nærbuxurnar á hótelherberginu – Tær snilld eða helber sóðaskapur?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Húslestur með Sunnu Dís

Húslestur með Sunnu Dís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu

Músíkalskt íslensk-færeyskt samband í hangsinu
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað

Kona stefnir eiginmanni sínum fyrir dóm til að fá lögskilnað
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum