fbpx
Föstudagur 19.desember 2025
Fókus

Klámmyndaleikkonan Mia Khalifa birti „fyrir og eftir“ myndir: „Fólk er alltaf að spyrja mig hvernig ég fari að því að borða svona mikið en vera samt grönn“

Fókus
Miðvikudaginn 27. júní 2018 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin líbansk ættaða Mia Khalifa sem einna helst hefur öðlast frama fyrir leik sinn í klámmyndum, en starfar nú sem íþróttafréttamaður, birti í gær mynd af sér á Instagram sem kom mörgum á óvart.

Á „fyrir“ myndinni má sjá Miu sem nokkuð búsældarlega unglingsstelpu en á „eftir“ myndinni er Mia eins og hún lítur út í dag.

Við myndina skrifar hún að lífið snúist um jafnvægi og að fyrir henni snúist þetta fyrst og fremst um að ná jafnvægi milli ástríðu sinnar á mat og heilsu sinnar.

„Fólk er alltaf að spyrja mig hvernig ég fari að því að borða svona mikið en vera samt grönn,“ skrifar Mia Khalifa við myndina.

„Þetta hefur ekki alltaf verið svona og þetta krefst brjálaðrar vinnu. Málið snýst ekki um góð gen eða að hafa hraða brennslu af því maður er ungur. Þetta gengur út á að fara fimm sinnum í viku í ræktina svo að ég geti farið í frí annan hvern mánuð, borðað allt sem mig langar í án þess að fá samviskubit og drekkt próteininu mínu í rjómasósu. Í stuttu máli: Leggðu hart að þér og borðaðu kolvetni.“

Matgæðingurinn Mia heimsótti meðal annars Kaupmannahöfn á dögunum og var alveg yfir sig hrifin.

Hún var að sjálfssögðu dugleg að fara út að borða og heimsótti meðal annars veitingastaðina Kong Hans, Amass, Kadeau og Geranium en á þessari Instagram mynd sést fallegur réttur sem hún myndaði á síðastnefnda staðnum.

Taktu eftir að hún er með hníf og gaffal flúrað á löngutöng.

?

A post shared by Mia K. (@miakhalifa) on

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor
Fókus
Fyrir 1 viku

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs