Hannes Hólmsteinn Gissurarson virðist sár og reiður yfir því að hafa ekki fengið boð á alþjóðlega ráðstefnu um bankahrunið árið 2008 á dögunum. Ráðstefnan var í Háskóla Íslands og þar töluðu meðal annars Edmund Phelps, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, og Robert Z. Aliber, hjá Yale-háskóla.
Gylfi Zoega, sem kom að ráðstefnunni, vildi ekki tjá sig við DV en það er í sjálfu sér ekki óvanalegt að boðsráðstefnur og fundir séu haldnir í Háskóla Íslands.
Það fór fyrir brjóstið á Hannesi að Þorvaldi Gylfasyni var boðið að flytja erindi og tiltekur sérstaklega að Þorvaldur hafi haft uppi getgátur um samsæri varðandi morðið á John F. Kennedy og árásina á Tvíburaturnana 11. september árið 2001.
Eins og flestum er kunnugt hefur Hannes unnið að skýrslu um bankahrunið í þó nokkurn tíma en hann hefur áður varið þátt Davíðs Oddssonar í aðdraganda hrunsins með kjafti og klóm.