fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?

Eyjan
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að pólitísk afturganga hafi gert vart við sig í íslenskri stjórnmálaumræðu eftir sköruglegt viðtal Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í Kastljósi í gærkvöldi. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, sem gegndi ráðherraembætti í sjö ár í vita gagnslausri og aðgerðalausri vinstristjórn Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar, þótt enginn viti hvað hann var að gera allan þann tíma að því slepptu að hann fór til og frá vinnu í ráðherrabíl með bílstjóra, virðist þykja þess umkominn að beina spurningum til Samfylkingarinnar um það „hvort það hafi verið skynsamlegt að koma Flokki fólksins til valda.“

Orðið á götunni er að þetta hefði Guðmundur Ingi betur látið ógert. Flokkur fólksins hefur nefnilega komið eins og hvítur stormsveipur inn í ríkisstjórn og nokkuð ljóst að aldrei áður hefur flokkur setið við ríkisstjórnarborðið sem sannarlega ber hag þeirra sem minnst mega sín fyrir brjósti og er tilbúinn að berjast fyrir okkar minnstu bræðrum og systrum. Svo mikið er víst að ekki barðist VG fyrir hag hinna minnstu þegar flokkurinn sat í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og afrekaði það helst að dekra við helstu auðmenn landsins í boði Sjálfstæðisflokksins og standa í vegi allra virkjana og koma þannig í veg fyrir verðmætasköpun hér á landi, ekki aðeins í tíð hinnar verklausu ríkisstjórnar heldur inn í tímabil nýrrar ríkisstjórnar vegna þess að það tekur því miður tíma að standsetja skip sem safnað hefur hrúðurkörlum við bryggju í sjö ár.

Orðið á götunni er að vitaskuld svíði Guðmundi Inga það að Inga Sæland og flokkur hennar hefur sýnt, svo ekki verður um villst, að það er hægt að setjast í ríkisstjórn og hrinda í framkvæmd verkefnum sem koma þeim sem eiga undir högg að sækja til góðs. Ekki þarf að spyrja að því að kampavínskommunum í VG finnst erfitt að sjá það svart á hvítu að loksins er einhver mættur til leiks sem hrindir í framkvæmd því sem VG lofaði einatt og sveik ávallt til að komast í hlýja hjónasæng með íhaldinu. Flokkur fólksins hefur sýnt svo um munar að engin þörf er fyrir flokk eins og VG hér á landi, hið minnsta ekki ef málið snýst um að bæta stöðu þeirra sem minnst hafa.

Orðið á götunni er að fremur en að spyrja hvort skynsamlegt hafi verið að leiða Flokk fólksins til valda ætti að spyrja hvort það hafi verið skynsamlegt af hálfu VG að leiða Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðisflokkinn til valda? Nú, eða var það skynsamlegt af hálfu Bjarna að leiða VG til valda? Arfleifð þeirrar ríkisstjórnar er stöðnun og afturför.

Orðið á götunni er að Guðmundur Ingi og aðrir ráðherrar vinstri stjórnarinnar, sem kjósendur höfnuðu í nóvember 2024, ættu að forðast að vera að minna á sig meira en brýn þörf er á. Fallna ríkisstjórnin var einhver sú óvinsælasta í lýðveldissögunni, og ekki að ástæðulausu, á meðan valkyrjustjórnin, með Ingu Sæland og Flokk fólksins innanborðs, er einhver sú vinsælasta sem sögur fara af, og ekki heldur að ástæðulausu.

Orðið á götunni er að full ástæða sé hjá Ingu Sæland að stokka upp kennslumál upp á nýtt. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra síðustu ríkisstjórnar, tók ákveðin skref í þá átt, t.d. með stofnun Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, en komst lítt áfram að öðru leyti vegna þess að dagskipunin í þeirri ríkisstjórn var að gera helst ekki neitt. Inga Sæland er rétta manneskjan til að hrista nú upp í málum og leiða byltingu í skólamálum á Íslandi. Ekki er vanþörf á.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins