Unnur Andrea Sævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip. Hún mun leiða reynslumikið teymi sem býður upp á skilvirkar og hagkvæmar flutningalausnir til viðskiptavina félagsins sem byggir á öflugum innviðum og sterku siglingarkerfi Eimskips.
„Innflutningur til Íslands er einn af lykilþáttum í okkar samfélagi. Hlutverk okkar er að veita framúrskarandi þjónustu og finna bestu lausnirnar hverju sinni fyrir viðskiptavini. Við erum með öflugt net samstarfsaðila erlendis og erum í samstarfi við mörg af stærstu skipafélögum heims,“ segir Unnur Andrea í tilkynningu.
Hún hóf störf hjá Eimskip árið 2016 sem sumarstarfsmaður í innflutningsþjónustu. Hún lauk B.Sc. gráðu í Viðskiptafræði frá HÍ árið 2018 og var á ráðin í fullt starf í þjónustuteymi innflutnings hjá félaginu að námi loknu.
„Ég starfaði um tíma á skrifstofu Eimskips í Þýskalandi, þar sem ég fékk góða innsýn í alþjóðlega starfsemi félagsins og sinnti fjölbreyttum verkefnum. Síðar tók ég við sem sölustjóri og leiddi sölustarf skrifstofunnar. Sú alþjóðlega reynsla hefur reynst mér dýrmæt og nýtist mér vel í starfi. Eftir heimkomuna tók ég við starfi viðskiptastjóra í innflutningi og hlakka nú til að leiða þetta frábæra teymi í nýju og spennandi hlutverki sem forstöðumaður söludeildar innflutnings.“