Musk og Trump ræddust að sögn ekki við undir lok samstarfsins.
Musk tilkynnti brotthvarf sitt úr liði Trump skömmu eftir að hann gagnrýndi nýtt fjárlagafrumvarp Trump sem fulltrúadeild þingsins samþykkti í síðustu viku.
„Ég varð fyrir vonbrigðum með að sjá fjárlög með svona miklum útgjöldum sem auka skuldirnar. Þetta grefur undan starfi DOGE,“ sagði Trump í samtali við CBS News.
Hann hafði áður sagt að starfi hans hjá DOGE myndi ljúka eftir 130 daga en það svarar til loka maí.
En þrátt fyrir að Musk hafi tilkynnt um brotthvarf sitt fyrir löngu, þá voru þeir félagar ekki mjög kumpánlegir við hvorn annan þegar það kom að leiðarlokum.
„Brotthvarf hans bar skjótt að og var ekki formlegt. Hann ræddi ekki formlega við Trump áður en hann tilkynnti um brotthvarf sitt,“ sagði heimildarmaður að sögn Reuters.