Kjósendur flokksins hafa að vonum áhyggjur af framtíð hans samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem var gerð af AP og University of Chicago.
Niðurstöður könnunarinnar endurspegla þann klofning sem lamar Demókrataflokkinn þessa daga í kjölfar stórtaps Kamala Harris fyrir Donald Trump í forsetakosningunum á síðasta ári.
Það þarf svo sem ekki að koma á óvart að kjósendur Demókrataflokksins séu svartsýnir á pólitíska framtíð flokksins. Skoðanakönnun, sem CNN gerði í mars, sýndi að vinsældir flokksins hafa ekki verið minni í 30 ár.
Samkvæmt nýju könnun AP og University of Chicago, eru aðeins 35% kjósenda Demókrataflokksins mjög eða að hluta bjartsýnir á framtíð flokksins. Í júlí á síðasta ári var hlutfallið 57%.
Derek Beach, sem vinnur við kosningarannsóknir við Árósaháskóla, sagði í samtali við TV2 að ástæðan fyrir þessu sé „höggið“ sem Demókratar fengu þegar Donald Trump var kjörinn forseti síðasta haust.
36% kjósenda flokksins eru svartsýnir á framtíð flokksins en voru 26% á síðasta ári.
Það eru aðallega tvö atriði sem kljúfa flokkinn í herðar niður. Sú fyrri er hver á að leiða flokkinn? Hin er hvernig á að takast á við Donald Trump.
Eitt stærsta vandamál flokksins er að hann vantar leiðtoga, leiðtoga sem lætur að sér kveða og á auðvelt með að ná til fólks. Þess utan þarf flokkurinn á nýjum hugmyndum að halda.