Það er almennt vitað að Elon Musk, ráðgjafi Donald Trump, og Scott Bessent, fjármálaráðherra, kemur ekki vel saman. Nú eru nýjar upplýsingar komnar fram um ósætti þeirra og hávaðarifrildi þeirra beint fyrir framan nefið á Trump.
Nýlega skýrðu fjölmiðlar frá deilum þeirra og Axios bætti um betur og kom með nýjar fréttir um deilur þeirra á skrifstofu Trump í Hvíta húsinu.
„Þetta voru tveir hvítir, miðaldra milljarðamæringar, sem héldu að þetta væri glímukeppni í Vesturálmunni,“ sagði heimildarmaður Axios.
Rifrildið snerist að sögn um hver eigi að stýra bandaríska skattinum, IRS. Þegar rifrildi Musk og Bennet hófst hafði Trump tilnefnt Gary Shapley, sem Musk vildi í embættið. Bandarískir fjölmiðlar segja að Trump hafi síðan bakkað með þetta og reiknað sé með að Michael Faulkender, sem Bessent vill í embættið, fái það.
Axios segir að það hafi verið Bennet sem hóf rifrildið. Hann hafi sagt við Musk að hann hafi farið á bak við hann. „F-sprengjurnar byrjuðu að fljúga um loftið,“ sagði heimildarmaður og á þar auðvitað við orðið „fuck“.
Trump var viðstaddur þegar þessi orðaskipti áttu sér stað og Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, var í heimsókn í Hvíta húsinu þennan dag og er sögð hafa heyrt orðaskiptin.
Sjónarvottur sagði að Bessent hafi öskrað „fuck you“ að Musk sem hafi þá beðið hann um að segja þetta hærra.