fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Eyjan

Hvernig stóð ríkisstjórnin sig í vetur?

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 4. júlí 2024 07:00

Ríkisráð Íslands við skipun annars ráðuneytis Bjarna Benediktssonar 9. apríl 2024 Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðskiptaráð hefur metið efnahagsleg áhrif allra þingmála ríkisstjórnarinnar á nýafstöðnum þingvetri. Samtals voru 63 þingmál ríkisstjórnarinnar samþykkt sem höfðu efnahagsleg áhrif. Heildarmat ráðsins er að samanlögð áhrif þessara mála hafi verið lítillega jákvæð. Áhrif eftir ráðuneytum voru misjöfn, en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skilaði íslensku efnahagslífi mestum ávinningi í vetur.  Kemur þetta fram á vef Viðskiptaráðs.

121 þingmál náði fram að ganga 

Á nýafstöðu þingi lagði ríkisstjórnin fram 148 lagafrumvörp og þingsályktunartillögur. Af þeim náði 121 mál fram að ganga, mörg hver í blálok þingvetrar. Af þeim málum sem voru samþykkt á Alþingi höfðu 63 mál efnahagsleg áhrif, ýmist jákvæð eða neikvæð.  

Smelltu á myndina til að sjá í fullri upplausn.

Efnahagsleg áhrif þingmála voru misjöfn eftir ráðuneytum. Áhrif Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, voru þar jákvæðust. Sjö mál voru þingfest úr hennar ráðuneyti og höfðu þau öll jákvæð áhrif. Þar má til dæmis nefna ákvæði um opið aðgengi að opinberum gögnum og aðgerðir til að efla hugverkageirann á Íslandi. 

Sala Íslandsbanka jákvæðust, 11 neikvæð mál 

Eitt mál var metið með veruleg jákvæð efnahagsleg áhrif í vetur, en það er heimild til sölu á eftirstandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Frumvarpið felur í sér heimild ráðherra til að ljúka sölu á bankanum og þar með draga úr umsvifum ríkisins á bankamarkaði. Það mál mun hafa mikil jákvæð áhrif þegar kemur að opinberum skuldum, vaxtagreiðslum og heilbrigðri samkeppni á bankamarkaði. 

Alls voru ellefu mál metin með markverð neikvæð áhrif. Þar má til dæmis nefna ný húsaleigulög, sem munu draga úr framboði leiguhúsnæðis, og fjárlög, þar sem lítið var dregið úr útgjöldum en skattar hækkaðir. Þá höfðu öll þingmál í tengslum við undirritun kjarasamninga neikvæð áhrif, til dæmis sérstakur vaxtastuðningur, gjaldfrjálsar skólamáltíðir og hækkun húsnæðisbóta. Loks fól rúmlega helmingsaukning listamannalauna í sér ófjármagnaða útgjaldaaukningu og hækkun umsýslukostnaðar við úthlutanir. 

Tækifæri til að safna fleiri stigum 

Í úttektinni fór Viðskiptaráð yfir öll þingmál ríkisstjórnarinnar sem fram náðu að ganga á nýafstöðnum þingvetri. Við mat á áhrifum mat ráðið fyrst hvort þingmálið hefði áhrif á atvinnu- og efnahagslíf. Ef svo var þá var málinu gefin einkunn á skalanum 1-3 með jákvæðu eða neikvæðu formerki, eftir því hvort efnahagslegu áhrifin eru lítil, miðlungs, eða mikil. Mál þingnefnda voru undanskilin í úttektinni auk þingmála vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga og fjáraukalaga. 

Heildarniðurstaða liðins vetrar er að efnahagsleg áhrif þingmála ríkisstjórnarinnar hafi verið lítillega jákvæð. Viðskiptaráð hvetur bæði stjórnvöld og einstaka ráðherra til að gera betur næsta vetur. Það mun endurspeglast í fleiri stigum sumarið 2025, þegar þessi úttekt verður endurtekin, en ekki síður í bættum lífskjörum þeirra sem hér búa. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir