

Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Það er rosaleg dagskrá í Bestu deild karla á þriðjudag. Þrír leikir hefjast þá á sama tíma: ÍA-Valur, Stjarnan-Breiðablik og toppslagur Víkings og KR.
Ljóst er að margir vilja sjá þessa leiki, sér í lagi þá tvo síðastnefndu.
„Ég hvet KSÍ til að færa annan leikinn yfir á miðvikudag til að gera fólki kleift að mæta á báða leikina,“ sagði Hörður og tók dæmi úr enska boltanum.
„Ég er hrifinn af því að spila nokkra leiki á sama tíma en þú vilt ekki að United-City og Liverpool-Arsenal séu á sama tíma.“
Þátturinn er í spilaranum.