Eyjan

Þrír nýir stjórnendur hjá Lyfju

Mynd
Lykilstjórnendur Lyfju og framkvæmdastjóri. F.h. Þórbergur Egilsson, Arnheiður Leifsdóttir, Ásdís Eir Símonardóttir, Þorvaldur Einarsson, Karen Ósk Gylfadóttir, Ólöf Helga Gunnarsdóttir. Mynd/ Íris Dögg

Ásdís Eir Símonardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Lyfju og kemur ný inn í hóp lykilstjórnenda félagsins ásamt Arnheiði Leifsdóttur og Ólöfu Helgu Gunnarsdóttur sem eru nýir forstöðumenn á sínum sviðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

 

Ásdís Eir er með MS próf í félags- og vinnusálfræði frá Háskóla Íslands og BS próf í sálfræði. Hún hefur síðastliðið ár starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og unnið að mannauðsverkefnum með fyrirtækjum á borð við Nova, Ljósleiðarann, Veitur, Stafræna Ísland og þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar.

 

Arnheiður Leifsdóttir stundaði nám í alþjóðamarkaðsfræði við HR og hefur starfað hjá Lyfju frá árinu 2020, síðast sem markaðsstjóri en gegnir núna starfi forstöðumanns markaðs- og vefmála. Áður starfaði hún sem forstöðumaður markaðsmála hjá TM, eða frá 2007 til 2018.

Ólöf Helga Gunnarsdóttir er forstöðumaður vörusviðs og greininga Lyfju. Hún með B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hóf störf á vörusviði Lyfju haustið 2022. Þar áður starfaði hún í vörustýringu hjá 66°Norður á árunum 2015 til 2022.

 

„Við erum spennt fyrir framtíðinni hjá Lyfju með fjölbreyttan hóp leiðtoga þar sem reynsla, sérþekking og metnaður einkennir teymið. Við brennum fyrir því að efla þjónustu við viðskiptavini um land allt í formi nýrra lausna, faglegrar ráðgjafar og með breiðu og góðu vöruvali. Okkar markmið er að styðja við Lyfjuliðið í sínu starfi og halda áfram okkar vegferð að auka lífsgæði og efla heilsu landsmanna,“ segir Karen Ósk Gylfadóttir framkvæmdastjóri Lyfju.

Ásdís Eir hefur fjölþætta faglega reynslu eftir að hafa bæði starfað innan fyrirtækja og verið formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi, á árunum 2020 til 2023. Hún var mannauðsstjóri  hjá fjártæknifyrirtækinu Lucinity  2021 til 2023 og í mannauðsteymi Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2016 til 2021.

Auk Ásdísar, Arnheiðar og Ólafar eru Þórbergur Egilsson og Þorvaldur Einarsson hluti af hópi forstöðumanna Lyfju undir forystu Karenar Óskar Gylfadóttur framkvæmdastjóra.