fbpx
Þriðjudagur 16.september 2025
Eyjan

Útsvarstekjur sveitarfélaganna hafa aukist um 2,2 prósent

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 4. nóvember 2020 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fyrstu tíu mánuðum ársins jukust útsvarstekjur sveitarfélaganna um 2,2 prósent. Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sveitarstjórnarmála, segir að honum hugnist ekki að ríkissjóður rétti sveitarfélögunum hjálparhönd með beinum fjárframlögum.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Sigurði Inga að staða sveitarfélaganna sé mismunandi og því ekki sanngjarnt að deila út ríkisaðstoð til þeirra allra.

„Það eru til sveitarfélög sem fullnýta ekki sína tekjustofna, standa vel og eru því að leggja minna af mörkum til samneyslunnar. Það væri því skrítið fyrir ríkissjóð að taka lán til að styrkja öll sveitarfélög jafnt. Mér litist betur á að framlengja úrræði ríkisstjórnarinnar, sama hvort það heitir hlutabætur eða lengri tekjutenging atvinnuleysisbóta, til að tryggja tekjustofna sveitarfélaganna og styðja við getu heimila til að borga sín þjónustugjöld,“

er haft eftir honum.

Fram kemur að samkvæmt gögnum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafi útsvarstekjur sveitarfélaga verið hærri á fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Skýringuna má finna í ýmsum úrræðum stjórnvalda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framkvæmdastjóri N1: Látum breytingar koma hratt fram í verðinu – bæði til lækkunar og hækkunar

Framkvæmdastjóri N1: Látum breytingar koma hratt fram í verðinu – bæði til lækkunar og hækkunar
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón vill breyta þessu við hátíðleg tækifæri – „Þurfum við ekki að taka höndum saman“

Jón vill breyta þessu við hátíðleg tækifæri – „Þurfum við ekki að taka höndum saman“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi

Orðið á götunni: Forseti hefur lög að mæla – fólk vill ekki endurtekna gíslatöku á Alþingi
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur bálreiður út í ríkisstjórnina

Vilhjálmur bálreiður út í ríkisstjórnina
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vanstillt þjóðfélagsumræða

Björn Jón skrifar: Vanstillt þjóðfélagsumræða
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Forpokaðir fordómagrísir haldnir forréttindablindu ráðast gegn minnihlutahóp

Orðið á götunni: Forpokaðir fordómagrísir haldnir forréttindablindu ráðast gegn minnihlutahóp
Eyjan
Fyrir 1 viku

Breytingar í framkvæmdastjórn Póstsins – Eymar og Benedikt ráðnir

Breytingar í framkvæmdastjórn Póstsins – Eymar og Benedikt ráðnir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla

Svarthöfði skrifar: Blásið til sóknar fyrir alla – ekki bara Range Rover, Benz og Porsche liðið heldur alla