Halli Hallssyni, fjölmiðlamanni og þjóðfélagsrýni, ofbýður ný opnumynd á Facebook-síðu Kirkjunnar. Gefur þar að líta mynd af Jesú Kristi með brjóst.
Vefur Morgunblaðsins fjallaði um málið í dag og varð Pétur G. Markan, samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar, fyrir svörum. Segir Pétur myndina endurspegla fyrst og fremst samfélagið sem við búum í.
„Hugmyndin að myndefninu er að fanga samfélagið sem við öll viljum tilheyra; réttlátt, fordómalaust og kærleiksríkt umhverfismiðað samfélag sem einblínir á kærleiksboðskap Jesú Krists í stað þess að hengja sig í hvers kyns hann hafi verið. Það skiptir ekki máli. Kannski var hann eftir allt saman „nonbinary“ trans Jesús eða kona. Það bara skiptir engu máli. Það sem skiptir máli er kærleikurinn og hvernig hann sífellt lagði lögmálið til hliðar og einblíndi á kærleikann, mannvirðingu og einingu allra í andanum,“ segir Pétur í samtali við Morgunblaðið.
Halli er brugðið yfir þessari myndnotkun og spyr í Facebook-færslu hvort foreldrum sé óhætt að senda börn sín í sunnudagaskóla Þjóðkirkjunnar. „Hvernig koma þau til baka?“ spyr Hallur.
Halli blöskrar sú afstaða að Péturs að það skipti ekki máli hver Jesús var. „Jesús sumsé var eitt af 52 kynjum sem börnum er kennt að velja af “sannleikstré” Þjóðkirkjunnar … börn eru ekki lengur bara strákar & stelpur?“ segir Hallur en pistill hans er eftirfarandi:
Hvað er hægt að segja um Þjóðkirkjuna? Jesús trans …
“Kirkjan vill ekki hengja sig í hver Jesús var,” segir samskiptastjóri Kirkjunnar. “Það skiptir ekki máli. Kannski var hann eftir allt saman „nonbinary“ trans Jesús eða kona. Það bara skiptir engu máli.”
Þá hafið þið það … það skiptir engu máli hver Jesús var … Jesús sumsé var eitt af 52 kynjum sem börnum er kennt að velja af “sannleikstré” Þjóðkirkjunnar … börn eru ekki lengur bara strákar & stelpur?
Biblían segir í 1. Mósebók: “Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu.”
Biskupsstofu finnst í lagi að láta sköpun Drottins í hendur BigPharma & BigBísniss til að fikta við; innrætingin & sáning efasemda hefjist strax í Sunnudagaskóla.
Er foreldrum óhætt að senda börn sín í Sunnudagaskóla Þjóðkirkjunnar? Hvernig koma þau til baka …
Annar trúmaður, Gunnar Þorsteinsson, kenndur við Krossinn, tekur í sama streng og skrifar: „Boðar Þjóðkirkjan annan Krist en þann sem Biblían boðar?“