fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Eyjan

Ríkisendurskoðandi þarf aukafjárveitingu vegna álags

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 6. desember 2019 09:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Úttektir Ríkisendurskoðunar fyrir árið 2019 hafa reynst mun kostnaðarsamari en undanfarin ár vegna aukins álags. Meðal úttekta stofnunarinnar eru þær er sneru að Íslandspósti, Tryggingastofnun, RÚV og Ríkislögreglustjóra. Er kostnaðurinn vegna þeirra alls 72 milljónir króna, samkvæmt minnisblaði frá Skúla Eggert  Þórðarsyni, ríkisendurskoðanda, til fjárlaganefndar Alþingis.

Fór hann fram á aukafjárveitingu og  krafðist fjárlaganefnd frekari rökstuðnings. RÚV greinir frá.

Úttektir fyrir árið 2019 hafa kostað 72 milljónir sem fyrr segir, en í fyrra nam slíkur kostnaður aðeins 24 milljónum og 15 milljónum árið 2017.

Í vinnustundum mælt voru þær 10.300 í ár, rúmlega 3600 í fyrra og um 2400 þar áður.

Þá skal horft til þess að úttektum Ríkisendurskoðunar á Tryggingastofnun og Ríkislögreglustjóraembættinu er ekki lokið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé

Jón Gnarr skrifar: ESB ske es spé
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista

Orðið á götunni: Sjálfstæðisflokkur áfram óstjórntækur – enn vandræðagangur – aðrir flokkar með öfluga lista
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey

Nína Richter skrifar: Kommóða formóður minnar úr Flatey
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þjóðin er klofin óháð ESB – þarf bara að fylgjast með Alþingi síðustu 12 mánuðina – sægreifar og kaupfélagið munu borga áróðurinn

Orðið á götunni: Þjóðin er klofin óháð ESB – þarf bara að fylgjast með Alþingi síðustu 12 mánuðina – sægreifar og kaupfélagið munu borga áróðurinn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði

Dómsmálaráðherra hjá Sameinuðu þjóðunum: Jöfn skipting fæðingarorlofs styrkir stöðu kvenna á vinnumarkaði