fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
Eyjan

Jón Ólafsson fær átta milljarða króna innspýtingu: „Mikil viðurkenning á þeim árangri sem við höfum náð“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 21. ágúst 2019 14:00

Jón Ólafsson. Aðsend mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icelandic Glacial hefur tryggt sér nýtt fjármagn frá skuldabréfasjóði sem stýrt er af BlackRock´s US Private Credit. Lánið nemur 35 milljónum Bandaríkjadala eða tæplega 4,4 milljörðum króna og hefur forgang á aðrar kröfuhafa Icelandic Glacial, samkvæmt tilkynningu.

Jafnframt efnir Icelandic Glacial til hlutafjáraukningar að fjárhæð 31 milljón Bandaríkjadala eða tæplega fjögurra milljarða íslenskra króna sem boðin verður bæði núverandi og nýjum fjárfestum til þess að renna styrkari stoðum undir áframhaldandi vöxt.

Jón Ólafsson er stofnandi og stjórnarformaður Icelandic Glacial. Hann segir þetta mikla viðurkenningu:

„Það er ákaflega ánægjulegt að fá þessa kröftugu innspýtingu úr skuldabréfasjóðum BlackRock sem er á meðal öflugustu sjóðastýringarfyrirtækja heims. Þessi nýja fjármögnun er mikil viðurkenning á þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum árum í að hasla okkur alþjóðlegan völl sem eitt af leiðandi vörumerkjum í hágæða drykkjarvatni.“

Dan Worrel, framkvæmdastjóri hjá BlackRock US Private Credit og nýr stjórnarmaður í Icelandic Glacial segir bjartsýnn á framhaldið:

„Við förum inn í þetta verkefni full tilhlökkunar og bjartsýni. Við höfum fylgst með þróun og vexti vörumerkisins í talsverðan tíma og erum staðráðin í því að leggja allt okkar af mörkum til þess að fjármagna og taka þátt í enn frekari umsvifum og markaðshlutdeild Icelandic Glacial í Bandaríkjunum og víðar um heiminn.“

Icelandic Glacial vatnið er tekið úr gríðarstórri uppsprettu lindarvatns í Ölfusi, rétt utan Þorlákshafnar. Uppsprettan er a.m.k. fimm þúsund ára gömul og er hún umlukin hrauni sem ver vatnið fyrir hvers kyns jarðvegsmengun.

„Icelandic Glacial hefur fest sig í sessi sem hágæðamerki á alþjóðlegum drykkjarvörumarkaði með sitt náttúrulega og heilnæma basíska PH-gildi 8,4 og einungis lítið magn steinefna auk hreinleikans og ferska bragðsins sem einnig eru óumdeild aðalsmerki. Iceland Glacial var fyrsta viðurkennda CarbonNeutral® átappaða vatnið í heiminum. Starfsemin grundvallast á náttúrulegum íslenskum orkugjöfum. Hún er að fullu kolefnisjöfnuð og skilur því ekkert kolefnisfótspor eftir sig,“

segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó

Óttar Guðmundsson skrifar: Inntökureglur í Menntó
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gylfi Magnússon: Bandaríkjamenn eru sjálfir að borga tolla Trumps

Gylfi Magnússon: Bandaríkjamenn eru sjálfir að borga tolla Trumps
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Víðsýn og frjálslynd hugsun endurvakin

Þorsteinn Pálsson skrifar: Víðsýn og frjálslynd hugsun endurvakin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar: Planið virkar – Lækkandi vextir og minnsta verðbólga frá 2020

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar: Planið virkar – Lækkandi vextir og minnsta verðbólga frá 2020