fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Eyjan

Neytendasamtökin krefjast inngrips stjórnvalda og tafarlauss endurútreiknings smálána 

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 26. júlí 2019 11:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neytendasamtökin fagna því að smálánafyrirtækin undir Kredia Group viðurkenni að vextir smálána hafi í áraraðir verið ólöglega háir og hafi ákveðið að lækka þá. Í tilkynningu frá samtökunum segir að stjórnvöld verði nú að tryggja endurútreikning á öllum lánum af hálfu hlutlauss aðila eins og umboðsmanns skuldara:

„Þetta þarf að gerast sem allra fyrst. Stjórnvöld tryggi einnig að Almenn innheimta ehf. láti umboðsmanni skuldara í té öll nauðsynleg gögn, en mjög hefur skort á upplýsingagjöf frá Almennri innheimtu ehf. til lántakenda.“

Þar segir einnig að þar til endurútreikningur hafi farið fram á smálánum sem eru í innheimtu, sé þess krafist að Almenn innheimta ehf. stöðvi alla innheimtu og Kredia group og Almenn innheimta ehf. endurgreiði ólögmæta vexti:

„Fjölmargir hafa þegar gert upp ólögleg smálán og eiga því inni kröfu á bæði Kredia Group og Almennri innheimtu ehf. Bæði þessi fyrirtæki ættu að sjá sóma sinn í því að endurgreiða oftekna vexti og biðja viðskiptavini sína afsökunar á að hafa stundað ólöglega lána- og innheimtustarfsemi um árabil.“

Creditinfo taki til í vanskilaskráningu

Neytendasamtökin hafa gagnrýnt harðlega að Creditinfo hafi sett fólk á vanskilaskrá vegna vanskila á ólöglegum lánum. Samtökin hvetja Creditinfo til að bregðast fljótt við og afskrá fólk sem sett hefur verið á vanskilaskrá vegna ólögmætra smálána. Lántakendur eiga ekki sjálfir að þurfa að senda andmæli til Creditinfo og Almennrar innheimtu ehf. þar sem fyrir liggur að vanskilaskráningin var ekki á rökum reist.

Bankar og kortafyrirtæki beri ábyrgð

Mjög hefur borið á því að smálánafyrirtækið hafi skuldfært af kortum og bankareikningum lántakenda á grunni mjög óljósrar skuldfærsluheimildar, segir í tilkynningunni.

„Neytendasamtökin líta það mjög alvarlegum augum að ólöglegar kröfur séu innheimtar með þessum hætti án þess að skýr heimild sé til staðar. Bankar og kortafyrirtæki eru hvött til að aðstoða sína viðskiptavini og tryggja endurgreiðslu ólöglegra úttekta hið snarasta, enda telja Neytendasamtökin að fjármálafyrirtækin séu ábyrg gagnvart sínum viðskiptavinum.

Neytendasamtökin hvetja stjórnvöld og fyrirtæki til að hafa bregðast afar skjótt við svo réttindi lántaka verði tryggð. Í því skyni benda Neytendasamtökin á málshraðann þegar ólögleg gengislán voru endurútreiknuð árið 2010.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?