Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fór fram á laugardaginn á Bifröst, hvar um 150 jafnaðarmenn af öllu landinu tóku þátt í fundinum. Ellefu ályktanir lágu fyrir, en fjórar ályktanir voru samþykktar og sjö vísað til málefnanefndar eða stjórnar flokksins til frekar vinnslu.
Þær tillögur sem hlutu samþykki voru eftirfarandi:
Ályktun 3.1. ESB
„Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar fagnar 25 ára afmæli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem var mikið heillaskref fyrir Íslendinga. Vissulega gefur samningurinn Íslendingum ekki færi á að hafa umtalsverð áhrif á stofnanir, löggjöf og þróun Evrópusambandsins. Slíkt fæst ekki nema með fullri aðild að Evrópusambandinu. Í ljósi hinnar góðu reynslu af samstarfinu innan EES telur Samfylkingin að mikilvægt sé að það skref sé stigið sem fyrst svo Íslendingar öðlist áhrif á þróun evrópsks samfélags til jafns við þorra annarra Evrópubúa.“
Ályktun 9.1. Loftslagsmál
„Nýjustu rannsóknir í loftslagsmálum sýna að næstu fimm til tíu ár skipta öllu máli fyrir mannkynið. Á þessum árum mun ráðast hvort við náum að stemma stigu við hlýnun jarðar eða fást við skelfilegar afleiðingar. Flokksstjórn Samfylkingarinnar krefst þess að stjórnvöld ráðist í metnaðarfyllri aðgerðir gegn hlýnun jarðar og tekur undir kröfu ungmenna um allan heim að 2,5% af þjóðarframleiðslu renni beint í slíkar aðgerðir. Flokksstjórn telur ennfremur nauðsynlegt að hækka kolefnisgjaldið og felur þingflokki Samfylkingarinnar að leggja fram frumvarp þess efnis. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál reiknast til að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári, til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5 gráður. Evrópusambandið áætlar að 25% af fjármagni stofnunarinnar verði varið í loftslagsmál til ársins 2027.“
Ályktun 11.1. Störf án staðsetningar
„Það er réttlætismál að fólk eigi kost á að sinna ríkisstörfum þótt það búi á landsbyggðinni og það er einnig réttlætismál að fólk geti valið sér búsetu á landsbyggðinni þótt það vinni hjá ríkinu. Þann 1. Janúar 2018 bjuggu 64% þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu en þar eru um 70% ríkisstarfa staðsett. Hér hallar því á landsbyggðina. Flokksstjórn Samfylkingarinnar ályktar að opinber störf á vegum ríkisins skuli ávallt vera án staðsetningar, nema aðstæður krefjist annars.“
Ályktun 5.1. Þróunarsamvinna
„Samfylkingin mun því næst þegar hún er í ríkisstjórn hækka framlög Íslands til þróunarsamvinnu til jafns við það sem gerist á öðrum Norðurlöndunum eða í kringum 0,7% af vergum þjóðartekjum (VÞT). Árið 2017 námu framlögin 0,31% af VÞT og stefna núverandi ríkisstjórnarinnar um að hækka framlögin upp í 0,35 lýsir í raun metnaðarleysi að mati Samfylkingarinnar. Á þessum sviðum eru tröllauknar áskoranir. Því er lágmarkskrafa að ríkt land á borð við Ísland geri sitt ítrasta í þessum efnum og að því mun Samfylkingin vinna, hvort sem hún er í stjórn eða stjórnarandstöðu.“
Eftirfarandi ályktanir var vísað til stjórnar eða málefnanefndar sem taka ályktun til meðferðar:
Ályktun 1.1. Kjaradómur<https://xs.is/wp-co
Ályktun 4.1. LÍN<https://xs.is/wp-content/u
Ályktun 5.1. Þróunarsamvinna<https://xs.is/
Ályktun 6.1. Tekjutengd sektarupphæð<https://xs.is/wp-
Ályktun 7.1. Bónusgreiðslur<https://xs.is/w
Ályktun 8.1. Klemmudagakerfi<https://xs.is/
Ályktun 10.1. Árskort frádráttarbær<https://xs.is/wp