fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Eyjan

Ásbjörn hlaut silfurverðlaun á EuroSkills í Búdapest

Ritstjórn Eyjunnar
Sunnudaginn 30. september 2018 13:10

Ásbjörn Eðvaldsson hlaut silfurverðlaun

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásbjörn Eðvaldsson hlaut silfurverðlaun á EuroSkills í Búdapest í dag, hvar hann keppti í rafeindavirkjun og hlaut 710 stig, en alls sex keppendur tóku þátt í greininni. Átta keppendur frá Íslandi tóku þátt í EuroSkills, sem fór fram dagana 26.-28. september og stóðu sig með sóma.

Íslenski hópurinn fékk þrjár viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur eða „medal of excellence“ auk silfurverðlauna, en viðmiðunarmörk til að ná því eru 700 stig. Haraldur Örn Arnarson prentsmiður hlaut 704 stig og varð í 6. sæti af 14 keppendum, Jón Þór Einarsson rafvirki hlaut 700 stig og varð í 8. sæti af 15 keppendum og Kristinn Gísli Jónsson matreiðslumaður hlaut einnig 700 stig og varð í 10.-12. sæti af 23 keppendum. Auk þess kepptu Finnur Ingi Harrýsson í málmsuðu, Sigurður Borgar Ólafsson í framreiðslu, Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir í bakstri og Þröstur Kárason í trésmíði.

Verkiðn – Skills Iceland segjast afar stolt af keppendum sínum og er um að ræða besta árangur á Evrópumóti til þessa. Keppendurnir voru valdir af hverri grein til að keppa fyrir Íslands hönd og hafa verið undir handleiðslu þjálfara frá því í vor, sem fór með þeim á mótið.

Frábær stemning er í keppendahópnum að loknu móti og allir sammála um að reynslan mun gagnast þeim til að þroskast sem fagmenn og skila góðum minningum um þátttöku á EuroSkills í Búdapest 2018.

Verkiðn – Skills Iceland er aðili að World Skills Europe sem heldur EuroSkills og hefur verið þátttakandi á vettvangi samtakanna og systursamtakanna WorldSkills frá árinu 2007.

Hópmynd af íslensku keppendunum

Skoðaðu keppnina og íslensku keppendurna

Hægt er að skoða keppnina og þátttöku íslensku keppendaanna á Facebook- og Instagramsíðum Verkiðnar:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum