Þegar Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi þá ákvörðun Orkuveitu Reykjavíkur að taka lán fyrir arðgreiðslum sínum, sakaði Gylfi Magnússon, varaformaður stjórnar OR, hana um einbeittan vilja til útúrsnúninga.
Hildur bregst við þessum ásökunum Gylfa, í dag:
„Fyrir helgi gagnrýndi ég arðgreiðslur Orkuveitunnar til Reykjavíkurborgar vegna rekstrarársins 2016. Meirihluti stjórnar samþykkti greiðslu 750 milljóna króna arðs jafnvel þó arðgreiðsluskilyrði væru ekki uppfyllt. Í aðdragandanum voru slegin lán til að fjármagna veisluna. Þarna misnotaði pólitíkin Orkuveituna sem tekjutusku fyrir óskilgreind verkefni borgarstjóra.
Gylfi Magnússon steig á stokk og sakaði mig um ásetning til útúrsnúninga. Ævintýralegustu útúrsnúningarnir voru þó hans slaufukennda tölfræði og sérbökuðu staðreyndir. Hann skautaði algjörlega framhjá umræðuefninu – arðgreiðslum sem ekki uppfylltu tilsett skilyrði. Hann var auðvitað í varnarstöðu. Hann er einn þeirra sem tók ákvörðunina á sínum tíma.“
Hildur viðurkennir að arðgreiðslur til eigenda séu sjálfsagðar í góðu árferði í hefðbundnum fyrirtækjarekstri:
„Orkuveitan er þó annars eðlis – hún er orkufyrirtæki í almannaeigu. Hún er fjármögnuð af borgarbúum. Kjarnahlutverk hennar er að veita góða þjónustu á hagstæðu verði. Ég legg til að horfið verði frá arðgreiðsluáformum og þjónustugjöld lækkuð til samræmis. Óþarflega háar gjaldskrár eru ekkert annað en dulbúin skattheimta á borgarbúa.“