Sigmundur Davíð Gunnlaugsson , formaður Miðflokksins hefur ráðið nýjan aðstoðarmann, samkvæmt tilkynningu.
Hann heitir Jón Pétursson, fæddur 1971 og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1991. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1994 og var stýrimaður til margra ára.
Hann er einn af stofnendum Miðflokksins.
Jón er giftur, á einn son og býr í Mosfellsbæ.