
Íslenska ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures hefur eytt myndbandi sem fyrirtækið birti á Instagram-síðu sinni eftir að neikvæðar athugasemdir voru ritaðar við myndbandið. Á myndbandinu sem er kyrfilega merkt fyrirtækinu og samkvæmt skjátexta tekið í jöklaferð á vegum þess má sjá nokkra einstaklinga höggva með öxi í jökulinn en í textanum kemur fram að það sé góð leið til að fá útrás. Höggin skila greinilega ummerki eftir sig á jöklinum sem vekur nokkra athygli í ljósi þess að fyrirtækið boðar á vefsíðu sinni að það standi fyrir umhverfisvænni ferðamennsku og að ferðamenn skilji sem allra minnst ummerki eftir sig í íslenskri náttúru.
Myndbandið er eins og áður segir ekki lengur aðgengilegt á Instagram-síðu Arctic Adventures. DV hefur myndbandið hins vegar undir höndum eftir ábendingar frá einstaklingum sem sáu myndbandið og náðu sumir hverjir að vista það áður en því var eytt. Einn heimildarmanna DV sem segist hafa oft heimsótt Ísland lýsir áhyggjum og óánægju vegna myndbandsins. Hann segir það koma einkennilega fyrir sjónir í ljósi yfirlýstrar stefnu Arctic Adventures um umhverfisvæna ferðamennsku og þess að íslenskir jöklar séu eins og aðrir jöklar víða um heim að bráðna vegna hlýnunar jarðar.
Vegna persónuverndarsjónarmiða getur DV ekki birt myndbandið í heild, a.m.k. að sinni, en skjáskot úr því má sjá hér fyrir ofan. Það er um 40 sekúndna langt og þar sjást nokkrir einstaklingar skiptast á að höggva. Ekki er ljóst hvort myndbandið er allt tekið í sömu ferðinni eða hvort er um að ræða starfsmenn á vegum fyrirtækisins, viðskiptavini eða bæði. Það virðist blasa við að ekki hafi verið þörf á höggunum öryggisins vegna heldur hafi aðeins verið um að ræða skemmtun til að fá útrás. Í skjátextanum sem er á ensku segir: „The best way to let off some steam is right here,“ sem þýða má á íslensku á þessa leið: Besta leiðin til að fá útrás er hér.
Í texta með myndbandinu kemur einnig fram að það sé tekið í ferð á vegum Arctic Adventures sem kallast Katla Ice Cave Tour. Í lýsingu á ferðinni á vef fyrirtækisins segir að hún feli meðal annars í sér göngu yfir Mýrdalsjökul og síðan sé haldið í íshelli á Kötlujökli, sem er út frá fyrrnefnda jöklinum.
Athæfið í myndbandinu vekur athygli í ljósi þess sem fram kemur á heimasíðu Arctic Adventures um umhverfisvæna og sjálfbæra ferðamennsku. Í texta um þetta viðfangsefni sem birtur er á ensku boðar fyrirtækið meðal annars að það sé því metnaðarmál að halda íslenskri náttúru eins ósnortinni og mögulegt er eftir ferðir á vegum þess. Það segist einnig styðja verkefnið „The Icelandic Pledge“ en það er á vegum ferðaþjónustufyrirtækja og stjórnvalda en það gengur út á ferðamenn heiti því á vef verkefnisins að fara eftir nokkrum grundvallaratriðum sem sögð eru ganga út á ábyrga ferðamennsku. Meðal þessara atriða er að skilja þá staði sem viðkomandi kannar eftir eins og komið var að þeim.
Einnig er tekið fram í umræddum texta á vef Arctic Adventures um umhverfisvæna og ábyrga ferðamennsku að leiðsögumenn sem starfa hjá fyrirtækinu leggi sig fram við að hvetja viðskiptavini í ferðum á vegum þess að haga sér ábyrgan hátt svo þeir skilji engin ummerki eftir sig í viðkvæmri náttúru Íslands. Í textanum segir að fyrirtækið boði og fari eftir mottóinu:
„Takið ekkert nema myndir. Skiljið ekkert eftir nema fótspor. Drepið ekkert nema tímann.“ (e. Take nothing but pictures. Leave nothing but footprints. Kill nothing but time).
DV sendi í gærmorgun fyrirspurn til Arctic Adventures um myndbandið og hvernig fyrirtækið telji það samræmast þessari yfirlýstu stefnu sinni um umhverfisvæna ferðamennsku og að skilja sem minnst ummerki eftir sig í íslenskri náttúru. Greint verður frá svörunum þegar þau berast.