fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

NATÓ-ríki íhuga að senda hermenn til Úkraínu

Ritstjórn DV
Föstudaginn 24. maí 2024 07:00

Kanadískir hermenn á æfingu Nató í Litáen. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneski herinn hefur að undanförnu sótt fram á nokkrum vígstöðvum í Úkraínu og eiga Úkraínumenn í miklum vanda við að verja land sitt. Nú íhuga mörg NATÓ-ríki að senda hermenn til Úkraínu. Þeir eiga þó ekki að berjast þar. Hlutverk þeirra verður að þjálfa úkraínska hermenn.

Ef af þessu verður, mun það draga varnarbandalagið enn frekar inn í stríðið. Vesturlönd hafa hvað eftir annað fært rauðu línuna sína, sem segir til um hvaða vopn og stuðning er hægt að veita Úkraínu, til án þess að vera sjálf álitin aðili að stríðinu.

Fyrst eftir innrás Rússa í febrúarlok 2022 þvertóku flest vestræn ríki fyrir að láta Úkraínumönnum banvæn vopn í té af ótta við að það myndi reita Vladímír Pútín til reiði.

Eins og frægt er ákváðu Þjóðverjar að senda Úkraínu 5.000 hermannahjálma, Danir sendu skotheld vesti og önnur ríki létu Úkraínu aðeins fá varnarvopn.

En þessi sjálfsákveðna rauða línu hefur færst mikið til síðan þetta gerðist og Úkraínumenn hafa fengið sífellt fullkomnari og betri vopn, til dæmis háþróaða skriðdreka, loftvarnarkerfi, flugskeyti, langdrægar fallbyssur og bráðum fá þeir fyrstu F-16 orustuþoturnar.

Jótlandspósturinn segir að nú séu nokkur NATÓ-ríki að íhuga að taka enn eitt skrefið til stuðnings Úkraínu og senda hermenn til landsins. Rússnesk stjórnvöld hafa varað mjög við þessu og segja að ef af þessu verði dragist NATÓ enn frekar inn í stríðið.

Hlutverk hermannanna, ef þeir verða sendir til Úkraínu, verður að þjálfa nýja úkraínska hermenn svo þeir geti tekið þátt í vörnum landsins.

Það að NATÓ-hermenn annist þjálfun úkraínskra hermanna í Úkraínu mun draga Evrópu og Bandaríkin enn dýpra og markvissara inn í stríðið og mörg bandalagsríki óttast að þetta geti farið yfir rauðu línu Pútíns.

En vandinn er að Úkraínu bráðvantar hermenn og segir The New York Times að Úkraínumenn hafi beðið NATÓ og Bandaríkin um aðstoð við að þjálfa að minnsta kosti 150.000 nýja hermenn og það helst nær víglínunni en í dag en margir úkraínskir hermenn fá nú þjálfun á Vesturlöndum, til dæmis í Þýskalandi og Bretlandi.

Fram að þessu hafa Bandaríkin og flest önnur NATÓ-ríki hafnað öllum tillögum um að senda hermenn til Úkraínu en Charles Q. Brown, æðsti yfirmaður bandaríska heraflans, sagði fyrir helgi að það virðist vera óhjákvæmilegt að senda hermenn til Úkraínu. „Það mun gerast með tímanum,“ sagði hann að sögn The New York Times.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast