fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Inga Sæland lætur allt flakka: „Stendur nákvæmlega á sama um allt nema rassgatið á sjálfum sér“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. desember 2023 11:32

Inga Sæland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, birtir býsna athyglisverða mynd á Facebook-síðu sinni í dag þar sem sjá má hreinar vaxtatekjur bankanna fyrstu níu mánuði áranna 2021, 2022 og 2023.

Samkvæmt myndinni námu hreinar vaxtatekur Arion banka, Landsbankans og Íslandsbanka samtals 113 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Á sama tímabili 2022 var upphæðin 94 milljarðar og árið 2021 var hún 77 milljarðar.

Inga er allt annan en sátt við þróun mála.

„Og svo er öskrað og grenjað þótt Flokkur fólksins vilji sækja fé í þessar græðgismaskínur með því að koma bankaskattinum í 0,838%,“ segir hún og lætur ýmislegt flakka.

„Enn og aftur erum við fórnarlömb valdníðslu og okurs. Enn og aftur fara fram stórkostlegir fjármagnsflutningar frá almenningi til auðmanna og okrara sem stendur nákvæmlega á sama um allt nema rassgatið á sljálfum sér. GRÆÐA GRÆÐA OG GRÆÐA MEIRA er eina hugtakið sem þeir hafa tileinkað sér.“

Hún vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar.

„Þvílíkt ógeðsleg ríkisstjórn sem gerir ekkert til að vernda okkur gegn þessum viðbjóði. Löggjafarvaldið er á Alþingi og það er þar sem taka skal á þessum óþverra öllum saman. Það er þar sem setja ber lög til verndar heimilunum. Það er þar sem lög yrðu sett til að verjast því að græðgismaskínur fjármálafyrirtækjanna fleyttu hækkun bankaskattsins til baka og beint í andlitið á okkur. Það er kjaftæði og algjör fyrirsláttur að ætla að halda því fram að þetta lið geti gert nákvæmlega það sem því sýnist, það er algjörlega undir ríkisstjórninni komið,“ segir Inga sem endar færslu sína á Facebook á þessum orðum:

„Bankarnir eru meira en aflögufærir svo mikið er víst. Við skulum hafa það á hreinu að þetta er mannanna verk.“

Þetta er myndin sem Inga Sæland birti.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“

Dagur varpar ljósi á algenga mýtu í ESB-umræðunni: „Hlustum ekki á hræðsluáróður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar

Sætti sig ekki við að missa ökuskírteinið – Afleiðingarnar voru skelfilegar