fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Skuggaleg þróun: „Þetta er ekki lengur bara ópíóðafaraldur“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 27. nóvember 2023 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ópíóðafaraldurinn dregur tugþúsundir til dauða í Bandaríkjunum á ári hverju. Og miðað við þróun mála er ekki útlit fyrir að þeim sem deyja langt fyrir aldur fram vegna lyfjanotkunar muni fækka á næstunni.

New York Times greinir frá því að farið sé að bera meira á því að þeir sem nota ópíóða að staðaldri eru einnig farnir að ánetjast fleiri tegundum lyfja. Þetta gerir það að verkum að mjög erfitt getur reynst að meðhöndla fíknina.

Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna, CDC, segir að um 70-80% allra ópíóðafíkla glími við svokallaða fjöllyfjafíkn sem er talsverð aukning frá því sem áður var.

„Þetta er ekki lengur ópíóðafaraldur,“ segir Dr. Cara Poland, aðstoðarprófessor við Michigan State University, í samtali við Times.

Í umfjölluninni kemur fram að fíkniefnasalar og framleiðendur efnanna séu oftar en ekki búnir að blanda allskonar efnum saman til að framkalla meiri fíkn hjá viðskiptavinum. Er hér til dæmis um að ræða xylazine, sem er deyfilyf ætlað dýrum, og kvíðastillandi lyf eins og Valíum, Xanax og Klonopin.

Þá eru mýmörg dæmi þess að á götunni gangi kaupum og sölum falsaðar töflur sem innihalda fentanýl.

Dr. Paul Trowbridge fíknilæknir segir fíkla sjaldan vita hvað þeir eru að kaupa með tilheyrandi hættu. „Þetta er drápsvöllur þarna úti,“ segir hann.

Loks kemur fram að metamfetamínneysla hafi aukist aftur jafnt og þétt í Bandaríkjunum og dauðsföllum samhliða því. Oft sé um að ræða einstaklinga sem nota bæði ópíóða og metamfetamín.

„Það getur verið erfitt að finna augnablikið þar sem einstaklingur er tilbúinn í meðferð við lyfjafíkn en metamfetamínið gerir þetta svo miklu erfiðara,“ segir sérfræðingur í fíknimeðferð við Times.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum
Elmar fékk þungan dóm
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ólafur varar landsmenn við – „Mikilvægt að fólk sé ekki að vaða með kámugar krumlur í nammiskálar og mat”

Ólafur varar landsmenn við – „Mikilvægt að fólk sé ekki að vaða með kámugar krumlur í nammiskálar og mat”
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar

Súlunesmálið: Leituðu til miðils og tónlistarmanns til að sefa ofsa Margrétar
Fréttir
Í gær

Dánarbú blindrar og fjölfatlaðrar konu þurfti að borga Tryggingastofnun – Hafði ekki hugmynd um skuldina

Dánarbú blindrar og fjölfatlaðrar konu þurfti að borga Tryggingastofnun – Hafði ekki hugmynd um skuldina
Fréttir
Í gær

Súlunesmálið: Margrét ekki svipt föðurarfinum – Hundruð handskrifaðra skilaboða hennar til foreldranna vekja óhug 

Súlunesmálið: Margrét ekki svipt föðurarfinum – Hundruð handskrifaðra skilaboða hennar til foreldranna vekja óhug 
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Metfjöldi sendinga á afsláttardögum

Metfjöldi sendinga á afsláttardögum