fbpx
Laugardagur 21.júní 2025
Fréttir

Íslensk Onlyfans stjarna leitar eftir aðstoð – Greiðslur berast seint og illa frá vefrisanum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 15. ágúst 2023 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk Onlyfans-stjarna, sem haldið hefur úti slíkri síðu í þrjú ár, er í vanda vegna þess að greiðslur eru farnar að berast seint og illa frá vefsíðurisanum. Þá hefur greiðsla fyrir einn mánuð, sem hljóðaði upp á 860 dollara eða rúmar 113 þúsund krónur, týnst.

Þetta kemur fram í nafnlausri færslu viðkomandi á Facebook-síðunni Lögfræðinördar þar sem óskað er eftir hjálp kunnugra til að endurheimta féið.

„Þannig er mál með vexti að ég er með Onlyfans síðu og hef verið með í um þrjú ár. Venjulega sækir maður um millifærslu (erlend millifærsla í gegnum banka) og tekur hún að jafnaði 5-7 daga að berast í heimabankann eins og Onlyfans gefur fram á heimasíðu sinni. Upp á síðkastið (frá áramótum) hafa greiðslurnar hins vegar borist mjög seint (allt upp í 20 dögum of seint) og nú nýlegast, hefur ein millifærslan frá þeim „týnst“,“ skrifar Onlyfans-stjarnan.
Segir viðkomandi að færsla upp á 860 dollara hafi verið samþykkt af Onlyfans þann 4. júlí síðastliðinn en ekkert bóli á peningunum. Þá hafi ítrekuðum fyrirspurnum til síðunnar og viðskiptabanka viðkomandi, Landsbankans, litlu skilað.
„Hvað get ég gert í þessari stöðu, ef eitthvað?,“ spyr Only-fans stjarnan ráðþrota.
Þá segir hún Onlyfans hafa gert þau óásættanlegu mistök að senda sér svokallaða PTC-kvittun fyrir millifærslu til annars viðskiptavinar, sem bar sama fornafn og íslenska Onlyfans-stjarnan þar sem viðkvæmar persónuupplýsingar komu fram, meðal annars fullt nafn, heimilisfang og bankaupplýsingar.
„Þetta sjokkeraði mig þar sem þetta er óásættanleg mistök að gera, en ég hafði auðvitað upp á stelpunni og lét hana vita af þessu,“ segir viðkomandi og ítrekar beiðni sína um hjálp.
Hér má sjá færsluna í heild sinni:

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd